Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

4. mars 2013 UtanríkisráðuneytiðÖssur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra 2009-2013

Ísland þarf ríkisolíufyrirtæki

Össur Skarphéðinsson skrifar:

Jan Mayen-samningarnir frá 1980 og 1981 eru með sterkustu samningum sem íslenska utanríkisþjónustan hefur gert. Þeir voru tær snilld. Af miklu hugviti náðu samningamenn okkar fram hagstæðum reglum um hlutdeild í hugsanlegum olíulindum svæðisins. Þannig var afmarkað eins konar sameiginlegt nýtingarsvæði og á Ísland rétt á 25% þátttöku í olíustarfsemi á norska hluta svæðisins og Noregur á 25% þátttöku á íslenska hlutanum.

Samkvæmt samkomulaginu njóta Íslendingar margvíslegs hagræðis umfram Norðmenn. Endanlegur samningur mælti svo fyrir að ætluðu Norðmenn að nýta rétt til fjórðungshlutdeildar í lindum Íslandsmegin, þar sem nú heitir Drekasvæðið, yrðu þeir að tilkynna það eigi síðar en mánuði eftir úthlutun rannsóknarleyfa. Þann rétt notfærði norska ríkisolíufyrirtækið sér varðandi leyfin tvö sem var úthlutað á Drekanum sl. sumar. Þeir bera þannig frá upphafi fjórðung kostnaðar við að koma svæðinu í vinnanlegt horf.

Íslendingar geta hins vegar beðið með ákvörðun þangað til fyrir liggur að byrjað er að draga upp olíu eða gas Noregsmegin og líkur eru á að hún sé arðbær. Áhætta íslenska ríkisins af slíkri þátttöku er því nær engin. Utan um íslensku hlutina í olíulindum Norðmanna er hins vegar

brýnt að stofna sérstakt ríkisolíufélag, líkt og Norðmenn gera í sama tilgangi. Fyrir því er raunar gert ráð í olíulögunum sem ég lagði fram á sínum tíma. Með þessu fyrirkomulagi bera Íslendingar enga fjárhagslega áhættu. Olíusjóðurinn yrði hlutafélag, sem dregur enn úr áhættu ríkisins.

Hagnaður þess gæti runnið í sérstakan olíusjóð eða auðlindasjóð að fordæmi Norðmanna. Þannig yrði tryggt að afrakstur lindanna kæmi núverandi kynslóðum aðeins til góða að litlu leyti en yrði ávaxtaður fyrir komandi kynslóðir, í krafti þeirrar fallegu röksemdar að hinir ófæddu eigi sinn skerf í endanlegum auðlindum þjóðarinnar.

Næsta skref er að stofna ríkisolíufélag til að halda utan um hluti Íslands í olíulindum Norðmanna sem verða til á vinnslusvæðinu Noregsmegin miðlínunnar. Staða Íslands sem olíuríkis styrkist því fyrr sem það er gert.


Grein utanríkisráðherra í Fréttablaðinu 4. mars 2013

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta