"Já, hiklaust" - Carl Bildt
Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra skrifar:
Eitt þarf ég að leiðrétta í grein minni um góðan gest - Carl Bildt. Ég sagði þar tvennt standa upp úr Íslandsheimsókn hans: Annars vegar lýsing hans á hvernig aðild að ESB hefði styrkt sænskt efnahagslíf. Hins vegar að þrátt fyrir ágreining í upphafi væru nú velflestir Svíar hlynntir aðild - utan öfgamenn til hægri og vinstri.
Ég steingleymdi hins vegar að minnast á þriðja grundvallaratriðið hjá honum - sjálft fullveldið.
Í Silfrinu lýsti Bildt nöturlega göllum EES-samningsins fyrir Ísland og Noreg, sem verða möglunarlaust að taka við ákvörðunum ESB og innleiða án þess að hafa nokkur áhrif. Bildt var spurður af Silfur-Agli hvort hann teldi fullveldi þjóða meira innan ESB en utan. "Já, hiklaust" svaraði hann einbeittur.
Bildt útskýrði í framhaldinu hvernig Svíþjóð hefur haft áhrif og gætt hagsmuna sinna með því að eiga sæti við borðið með hinum 26 aðildarríkjum Evrópusambandsins. Sömu reynslu höfum við heyrt frá öðrum gestum, eins og forseta Litháen og utanríkisráðherra Eistlands. Bæði, líkt og Carl Bildt, sögðu skýrt: "Fullveldi eykst með þátttöku, ekki einangrun."
Kjarnaatriði
Þessi reynsla góðra vinaþjóða leggur til hvílu kjarnaatriði í neikvæðum málflutningi Evrópuandstæðinga - að Ísland glati sjálfstæði sínu og fullveldi með því að ganga í ESB. Reynsla þeirra af inngöngu í ESB segir þvert á móti að fullveldi Íslands muni aukast með því að eiga þátt í sameiginlegum ákvörðunum um sameiginleg hagsmunamál. Í dag húkum við frammi á gangi þegar Evrópusambandið tekur ákvarðanir og fáum svo löggjöfina senda í tölvupósti. Halló, var einhver að tala um aðlögun?
Öll þekkjum við hvernig krónuhagkerfið grefur í dag stöðugt undan dugnaði og útsjónarsemi fólks, Ísland dregst aftur úr, og fullveldi okkar sem einstaklinga minnkar. Þess vegna mun efnahagslegur stöðugleiki sem fylgir aðild með lægri vöxtum, lægri verðbólgu og þar með lægri skuldum - auka fullveldi okkar sem einstaklinga. Carl Bildt hitti því naglann á höfuðið betur en hann kannski gerði sér grein fyrir.
Fullveldisrökin eru því tvímælalaust já-megin í Evrópuumræðunni. Nema góðir Íslendingar trúi Birni Bjarnasyni og Hjörleifi Guttormssyni betur en Carl Bildt.
Grein utanríkisráðherra birtist í Fréttablaðinu 26. mars 2013