Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

16. apríl 2013 MatvælaráðuneytiðSteingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra 2012-2013

Grein í Fréttablaðinu 13. apríl - "Ísland og erlendir kröfuhafar"


Ísland og erlendir kröfuhafar

Þó svo að mörg þúsund milljarðar króna afskrifist vegna hruns stóru viðskiptabankanna í október 2008 standa  umtalsverðar upphæðir eftir í þrotabúum þeirra. Ísland á gríðarlega mikið undir því að  uppgjör þessara eigna og brotthvarf þeirra úr hagkerfinu stefni stöðugleika og hagsmunum samférlagsins ekki í voða samhliða því  að okkur takist að afnema fjármagnshöft.   Mestu hagsmunir þeirra erlendu aðila sem eiga kröfur í bú gömlu bankanna liggja í því að fá aðgang að eignum í erlendri mynt. Þær eignir nema 1.500-1.700 milljörðum króna.

Útgreiðsla þessara eigna til kröfuhafa eftir því sem þær breytast í reiðufé í erlendri mynt hefur í sjálfu sér ekki bein áhrif á gjaldeyrisjöfnuð landsins enda lendir það utan okkar hagkerfis. Engu að síður þurfa erlendu kröfuhafarnir undanþágur frá fjármagnshöftunum. Þær er erfitt að veita fyrr en séð er fyrir endann á lausn málsins í heild og þá einkum hvernig eignarhlutur búanna í krónum verður meðhöndlaður. Þessi eignarhluti búanna í krónum samanstendur af ríflega tvisvar sinnum 200 milljörðum. Annars vegar er um að ræða eignarhlut þeirra í Íslandsbanka og Arion og hins vegar ýmsum öðrum krónueignum. Gamla snjóhengjan uppá um 400 milljarða er svo þar fyrir utan. Þannig að í heild er umfang málsins um 2.200-2.400 milljarðar króna.

Samningar við kröfuhafa eða skattlagning á útstreymi?

Hvað er nú til ráða í þessari stöðu? Augljósasti kosturinn er að láta reyna  á tilboð á viðskiptalegum grundvelli eða þá  einhvers konar samninga. Ómögulegt er að slá mati á niðurstöðu slíkra viðskipta eða samninga fyrirfram. Það er þó ljóst að eignarhlutir í evrópskum bönkum, hvað þá íslenskum, seljast langt undir bókfærðu nafnverði í dag. Kröfuhafar þyrftu því að sitja lengi fastir inn í íslensku hagkerfi ef þeir sættu sig ekki við verulegan afslátt. Með hinar hreinu krónueignir búanna hefði væntanlega hvort eð er alltaf farið eins og með krónur í snjóhengjunni, þ.e. að þeim yrði seint skipt á fullu álandsgengi. Annar kostur í stöðunni væri að beita útgönguskatti sem er vel þekktur þegar fjármagns- eða gjaldeyrishöft eru afnumin og hefur verið hluti af áætlun stjórnvalda um afnám hafta.

Lögin frá mars 2012 lykillinn

Það er því fátt nýtt í umræðunni um að gera megi ráð fyrir verulegri verðfellingu þessara krónueigna í eigu útlendinga eins og annarra krónueigna þeirra, að baki fjármagnshöftum, þegar að því kemur að skipta þeim í gjaldeyri.  Vissulega kunna óþolinmóðir erlendir kröfuhafar að sætta sig við afslátt á eignum sínum gegn því að koma fjármunum sínum úr landi.  En hvernig varð sú staða til? Jú, sú staða hefur orðið til vegna þess að Seðlabanki, ríkisstjórn og stjórnarmeirihlutinn hafa á þessu kjörtímabili gert allt rétt til að tryggja hagsmuni landsins í þessu sambandi. Munar þar mest um samþykkt frumvarps meirihluta efnahags- og viðskiptanefndar sem undirbúið var af Seðlabanka Íslands og efnahags- og viðskiptaráðuneytinu undir forustu undirritaðs í marsmánuði 2012. Þar voru eignir búanna færðar bak við fjármagnshöftin. Ef ég man rétt greiddi Sjálfstæðisflokkurinn atkvæði gegn því frumvarpi og viðstaddir Framsóknarmenn sátu hjá. Já, framsókn sat hjá í þessu mikilvæga máli en þykjast nú hafa fundið málið upp og eiga einkarétt á því að útdeila á grundvelli þess mögulegum óorðnum ávinningi.

Stórvarasöm loforð

Aðalatriðið  er að vandað sé til þessarar vinnu og að gullgrafaraæði grípi ekki um sig þannig að við fórnum sterkri samningsstöðu sem við höfum byggt upp með hárréttum aðgerðum. Kosningaloforð sem ganga út á að ákveða fyrirfram niðurstöðu sem eigi að skila svo og svo miklum ávinningi og setja á okkur tímapressu til að hægt verði að efna loforðin eru stórvarasöm, óábyrg og ekkert annað en ódýrt lýðskrum. Fari eitthvað úrskeiðis í aðgerðum til að vinda ofan af fjármagnshöftunum  gæti hagkerfið orðið fyrir miklu höggi. Krónan myndi veikjast sem þýddi verðbólguskot með tilheyrandi afleiðingum fyrir fyrirtæki og heimili. Því er mikilvægt að stíga engin skref fyrr en vissa er fyrir því að heildarlausn á vandanum sé fundin.  Þetta er hægt með samstilltu átaki og þolinmæði að vopni.

Steingrímur J. Sigfússon,

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra




Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta