Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

26. maí 2024 MatvælaráðuneytiðBjarkey Olsen Gunnarsdóttir

Vegið að æru em­bættis­manna - Grein birt á Vísi 25. maí 2024

Hávært ákall um gerð skýrs lagaramma í kringum sjókvíaeldi hefur verið viðvarandi lengi. Það verður að koma böndum á þessa atvinnustarfsemi, enda engri slíkri hollt að vaxa án skýrra laga og stefnu. Í stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar er þessa getið. Skýrsla Ríkisendurskoðunar sýndi síðan svart á hvítu að aðgerða var þörf.

Frumvarp til laga um lagareldi hefur vakið mikla athygli. Þar er lögð grundvallaráhersla á að gera náttúrunni hærra undir höfði með tilliti til lagareldis, eins og undirstrikað er í matvælastefnu frá árinu 2022.

Við það virðast ekki allir sáttir. Því miður hefur borið töluvert á því, í þeirri miklu umræðu sem hefur skapast í kringum málið, að starfsfólk matvælaráðuneytisins sé sakað um óheilindi. Við því verð ég bregðast enda er slíkur rógburður bæði ómálefnalegur og ósmekklegur.

Pólitíkin setur tóninn
Allt við gerð frumvarpsins liggur uppi á borðum. Engu stungið ofan í skúffu. Starfsfólk ráðuneytisins hefur unnið gífurlega mikla og vandaða vinnu við að koma málinu saman miðað við þær forsendur sem fyrir lágu.

Strax í upphafi lá fyrir að setja þyrfti ný heildarlög um lagareldi sem tækju meira tillit til náttúrunnar en núgildandi lög gera. Uppleggið var vistkerfisnálgun, aukin vernd villtra laxafiskastofna, vernd vistkerfa og dýravelferð, sjálfbær uppbygging atvinnugreinarinnar. Það stóð aldrei til að banna fiskeldi í sjó – það átti að setja lög í kringum atvinnugreinina.

Eftir ítarlega skoðun var talið farsælast að hafa leyfin ótímabundin til að tryggja ofangreind sjónarmið. Að baki þeirri ákvörðun lágu engin annarleg sjónarmið heldur þau einföldu rök að auknum réttindum atvinnurekenda fylgi stórauknar heimildir stjórnvalda til að grípa inn í sjókvíaeldi á forsendum umhverfis-, náttúru- og dýraverndar. Sá þáttur var þó harðlega gagnrýndur og er nú unnið að breytingum á tímalengd leyfa í meðförum atvinnuveganefndar Alþingis.

Alvarlegar ásakanir
Umræðan um frumvarpið hefur verið þung og á köflum ómálefnaleg. Því miður. Sérstaklega er ömurlegt að sjá gagnrýnendur viðhafa ummæli sem fela í sér ásakanir á hendur tilgreindum starfsmönnum ráðuneytisins, sem fela í sér brigsl um refsiverð brot ef sannar væru. Undir því get ég ekki setið þegjandi.

Það er of langt mál rekja hér þau fjölmörgu dapurlegu ummæli sem birst hafa frá framlagningu málsins þar sem starfsfólk ráðuneytisins er dregið ofan í svaðið en þeir sem þau hafa viðhaft vita um hvað er rætt. Það liggur í augum uppi að það er ég sem ber ábyrgð á frumvarpinu eins og það fór fyrir Alþingi, hvar ábyrgðin nú hvílir á framgangi þess. Ég hvet til þess að umræðan verði færð upp á málefnalegra plan.Hávært ákall um gerð skýrs lagaramma í kringum sjókvíaeldi hefur verið viðvarandi lengi. Það verður að koma böndum á þessa atvinnustarfsemi, enda engri slíkri hollt að vaxa án skýrra laga og stefnu. Í stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar er þessa getið. Skýrsla Ríkisendurskoðunar sýndi síðan svart á hvítu að aðgerða var þörf.

Frumvarp til laga um lagareldi hefur vakið mikla athygli. Þar er lögð grundvallaráhersla á að gera náttúrunni hærra undir höfði með tilliti til lagareldis, eins og undirstrikað er í matvælastefnu frá árinu 2022.

Við það virðast ekki allir sáttir. Því miður hefur borið töluvert á því, í þeirri miklu umræðu sem hefur skapast í kringum málið, að starfsfólk matvælaráðuneytisins sé sakað um óheilindi. Við því verð ég bregðast enda er slíkur rógburður bæði ómálefnalegur og ósmekklegur.

Pólitíkin setur tóninn

Allt við gerð frumvarpsins liggur uppi á borðum. Engu stungið ofan í skúffu. Starfsfólk ráðuneytisins hefur unnið gífurlega mikla og vandaða vinnu við að koma málinu saman miðað við þær forsendur sem fyrir lágu.

Strax í upphafi lá fyrir að setja þyrfti ný heildarlög um lagareldi sem tækju meira tillit til náttúrunnar en núgildandi lög gera. Uppleggið var vistkerfisnálgun, aukin vernd villtra laxafiskastofna, vernd vistkerfa og dýravelferð, sjálfbær uppbygging atvinnugreinarinnar. Það stóð aldrei til að banna fiskeldi í sjó – það átti að setja lög í kringum atvinnugreinina.

Eftir ítarlega skoðun var talið farsælast að hafa leyfin ótímabundin til að tryggja ofangreind sjónarmið. Að baki þeirri ákvörðun lágu engin annarleg sjónarmið heldur þau einföldu rök að auknum réttindum atvinnurekenda fylgi stórauknar heimildir stjórnvalda til að grípa inn í sjókvíaeldi á forsendum umhverfis-, náttúru- og dýraverndar. Sá þáttur var þó harðlega gagnrýndur og er nú unnið að breytingum á tímalengd leyfa í meðförum atvinnuveganefndar Alþingis.

Alvarlegar ásakanir

Umræðan um frumvarpið hefur verið þung og á köflum ómálefnaleg. Því miður. Sérstaklega er ömurlegt að sjá gagnrýnendur viðhafa ummæli sem fela í sér ásakanir á hendur tilgreindum starfsmönnum ráðuneytisins, sem fela í sér brigsl um refsiverð brot ef sannar væru. Undir því get ég ekki setið þegjandi.

Það er of langt mál rekja hér þau fjölmörgu dapurlegu ummæli sem birst hafa frá framlagningu málsins þar sem starfsfólk ráðuneytisins er dregið ofan í svaðið en þeir sem þau hafa viðhaft vita um hvað er rætt. Það liggur í augum uppi að það er ég sem ber ábyrgð á frumvarpinu eins og það fór fyrir Alþingi, hvar ábyrgðin nú hvílir á framgangi þess. Ég hvet til þess að umræðan verði færð upp á málefnalegra plan.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta