Hoppa yfir valmynd
11. desember 2021 Menningar- og viðskiptaráðuneytið

Það er jólabókaflóð

Jólabókaflóðið er skollið á, nú af talsvert meiri krafti en fyrir fáeinum árum þegar bókaútgáfa hafði dregist verulega saman. Sú þróun var óæskileg af mörgum ástæðum enda er bóklestur uppspretta þekkingar og færni. Ísland er sagnaþjóð og segja má að fyrsti þekkingarkjarninn hafi myndast við ritun konungasagna, Eddu-kvæði, Sturlungu og Heimskringlu Íslendingasagna á 12. öld og 13.öld. Ég er ekki í nokkrum vafa um að þessi ritun hafi lagt sterkan grunn að tungumálinu okkar. Það er hlutverk okkar allra að hlúa að því á þessum tímum örra tækni- og samfélagsbreytinga.

Gamla klisjan um að Íslendingar séu og eigi að vera bókaþjóð er skemmtileg, en dugar ekki ein og sér til að tryggja blómlega bókaútgáfu og lestur. Viðskiptalegar forsendur þurfa líka að vera til staðar. Þess vegna réðust stjórnvöld í margþættar aðgerðir til að snúa við neikvæðri útgáfuþróun og stuðla þannig að auknum lestri. Aðgerðirnar fela meðal annars í sér 25% endurgreiðslur vegna bókaútgáfu á íslensku, styrkingu listamannalauna, eflingu bókasafna og stofnun barna- og ungmennabókasjóðs.  Þannig hefur útgefnum bókatitlum fjölgað um 36% frá árinu 2017 og fyrir vikið getur bókaþjóðin státað af mikilfenglegri flóru bókmennta af öllu mögulegu tagi, fyrir aldna sem unga.

Mikilvægi lesturs

Það er óumdeilt að bóklestur eykur lesskilning barna, þjálfar greiningarhæfileika þeirra, einbeitingu og örvar ímyndunaraflið. Bóklestur örvar minnisstöðvar hugans, hjálpar okkur að skilja heiminn og tjá okkur. Allt ofangreint – og margt fleira – undirbýr börnin okkar fyrir framtíðina, sem enginn veit hvernig verður. Framtíðarfræðingum ber þó saman um að sköpunargáfa sé eitthvert besta veganestið inn í óvissa framtíðina ásamt læsi af öllu mögulegu tagi; menningarlæsi, talna-, tilfinninga- og fjármálalæsi svo dæmi séu nefnd. Hlutverk samfélagsins, með heimili og skóla í fararbroddi, er að hjálpa skólabörnum nútímans að rækta þessa eiginleika í bland við gagnrýna hugsun, dómgreind, lærdómsviðhorf og þrautseigju. Þar dugar ekki að hugsa til næstu fimm eða tíu ára, því börn sem byrjuðu skólagöngu sína í haust geta vænst þess að setjast í helgan stein að loknum starfsferli árið 2085.

Þetta stóra samfélagsverkefni verður ekki leyst með útgáfu bóka á íslensku einni saman, en hún er mikilvæg forsenda þess að börn nái að tileinka sér nauðsynlega framtíðarfærni. Þess vegna er svo mikilvægt að börn hafi aðgang að fjölbreyttu úrvali bóka og annars lesefnis á sínu móðurmáli og þeim peningum sem ríkið ver í stuðning við bókaútgefendur er vel varið. Það er einlæg sannfæring mín að hún muni ávaxta sig vel í höndum, huga og hæfileikum þeirra sem lesa.

Endurgreiðsla hluta kostnaðar við útgáfu bóka    

Lög um stuðning við útgáfu bóka á íslensku tóku gildi hinn 1. janúar 2019. Markmið laganna er að efla útgáfu bóka á íslensku með því að veita bókaútgefendum tímabundinn stuðning í formi endurgreiðslu á hluta kostnaðar sem fellur til við útgáfu bóka á íslensku. Samkvæmt upplýsingum frá Félagi bókaútgefenda hefur fjöldi skráðra titla fjölgað, samkvæmt skráðum titlum í Bókatíðindum ársins 2021. Um er að ræða umtalsverða fjölgun frá því á síðastliðnu ári, en skýrist hún meðal annars af aukinni útgáfu á hljóð- og rafbókum, ungmennabókum og þýddum skáldverkum og fræðibókum. Frá árinu 2017 hefur heildarfjöldi útgefinna titla farið úr 726 í 985 á árinu 2021. 

Listamannalaunum fjölgað   

Samkvæmt lögum nr. 57/2009 um listamannalaun veitir Alþingi árlega fé af fjárlögum til starfslauna listamanna í þeim tilgangi að efla listsköpun í landinu. Launasjóður rithöfunda veitir árlega starfslaun og styrki sem svara til 555 mánaðarlauna skv. lögunum.  Í fjáraukalögum fyrir árið 2020 var veitt 250 m.kr. framlag til fjölgunar listamannalauna. Starfslaun rithöfunda árið 2020 svöruðu þannig til 763 mánaðarlauna. Árið 2021 nam hækkunin 225 m.kr. og starfslaun til rithöfunda svöruðu til 646 mánaðarlauna.   

Barna- ungmennabókasjóður Auður

Með samþykktri þingsályktun um að efla íslensku sem opinbert mál á Íslandi árið 2019 var komið á laggirnar sérstökum barna- og ungmennabókasjóði innan bókmenntasjóðs, sem styrkir útgáfu barna- og ungmennabóka sem skrifaðar eru á íslensku. Sjóðurinn fékk heitið Auður og er tilgangur hans að auðga og efla útgáfu vandaðra bóka fyrir yngri lesendur. Frá tilkomu sjóðsins hefur verið úthlutað um 24 m.kr. til 75 verka.    

Höfundagreiðslur fyrir afnot á bókasöfnum auknar

Samkvæmt lögum um bókmenntir nr. 91/2007 eiga höfundar, sem eru ríkisborgarar eða búsettir í landi innan Evrópska efnahagssvæðisins, rétt á greiðslum fyrir notkun bóka þeirra á bókasöfnum, sem eru rekin á kostnað ríkissjóðs eða sveitarfélaga, af árlegri fjárveitingu Alþingis fyrir afnot á bókasöfnum.    Framlög í bókasafnssjóð höfunda hafa verið aukin verulega síðustu árin í samræmi við aðgerðaráætlun um þingsályktun um íslensku. Árið 2019 námu framlögin 76 m.kr. og hækkuðu í 125 m.kr ári síðar og eru nú 197 m.kr. Sjóðurinn úthlutar greiðslum vegna afnota á bókasöfnum til rithöfunda, þýðenda, myndhöfunda og annarra rétthafa í samræmi við útlán. Hækkunin kemur til móts við óskir höfunda um sanngjarnari greiðslur fyrir útlán á bókasöfnum. Jafnframt voru reglur um greiðslur fyrir afnot á bókasöfnum endurskoðaðar og staðfestar af ráðherra 16. febrúar 2021. Helsta breytingin er að nú fá rithöfundar einnig greitt vegna útlána Hljóðbókasafns Íslands. Greiðslur vegna útlána hvers árs eru greiddar út í maí árið eftir. 

Bókasafnasjóður endurvakinn

Bókasöfnin í landinu eru samfélagslega mikilvæg, meðal annars sem jöfnunartæki og þekkingarveitur en þau veita aðgengi að fjölbreyttu efni sem fólk á öllum aldri nýtir sér. Bókasafnasjóður styrkir skilgreindar rannsóknir og þróunar- og samstarfsverkefni á sviði bókasafna- og upplýsingamála og einnig heimilt að styrkja önnur verkefni til að efla faglegt samstarf bókasafna. Framlög í sjóðinn á árinu 2021 eru 25 m.kr.  Samfélags- og tæknibreytingar hafa ekki stöðvað jólabókaflóðið í ár, frekar en fyrri ár. Þvert á móti er straumurinn nú þyngri en áður og flóðið hefur skolað á land ómetanlegum fjársjóði. Ég hlakka til að njóta á aðventunni og hvet fólk til að setja nýja íslenska bók í jólapakkann í ár, bæði til barna og fullorðinna. 

Lilja Alfreðsdóttir, menningarmálaráðherra

Greinin birtist í Morgunblaðinu, laugardaginn 11. desember 2021.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta