Ráðherra afhendir í dag Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum viðurkenningu fyrir lofsvert lagnaverk 2009
15. október 2010, Keldur
„Lofsvert lagnaverk 2009“
Það er mér mikill heiður að fá að afhenda hér í dag Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum viðurkenningu fyrir lofsvert lagnaverk 2009. Það er Lagnafélag Íslands sem veitir viðurkenninguna fyrir lagnir af ýmsu tagi, hönnun, smíði og uppsetningu þeirra.
Segja má að í því verki sem viðurkenning er veitt fyrir sameinist ýmsir þættir hönnunar, innsæis og handverks. Þar fá að njóta sín útsjónarsemi, fágun og hagleikur iðnaðarmannsins. Þegar það fer saman með nákvæmni og gæðakröfum stofnunarinnar sem pantaði verkið er varla von á öðru en að útkoman verði snilldarleg.
Öryggisrannsóknarstofa Tilraunastöðvarinnar mun gegna mikilvægu hlutverki í framtíðinni við rannsóknir á hvers kyns óværu sem herjar á okkur mennina og því mikilvægt að vel sé að verki staðið við uppbygginguna þegar í byrjun.
Ég vil leyfa mér að óska öllum hlutaðeigandi innilega til hamingju með vel unnið verk og veiti viðurkenninguna í þeirri fullvissu að hér er að öllu staðið eins og best verður á kosið.