Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

07. desember 2011 Háskóla-٫ iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytiðMRN Fréttir

Aukin gæði í kennslu og rannsóknum háskóla


Grein Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra um eflingu kennslu og rannsókna um land allt með auknu samstarfi og öflugu gæðaeftirliti.

Katrín Jakobsdóttir
katrin_jakobsdottir_prent

Þau ánægjulegu tíðindi bárust á sama tíma og haldið var upp á 100 ára afmæli Háskóla Íslands að hann væri á nýjum lista Times yfir 300 bestu háskóla í heimi. Skammt er þess að minnast að HÍ setti sér það markmið að vera meðal 100 bestu háskóla heims og þessi árangur sýnir að takmarkið er raunhæft. Stofnun Aldarafmælissjóðs HÍ er liður í því verkefni enda takmark hans að efla rannsóknir og nýsköpun, sem nýtast muni til uppbyggingar atvinnulífs og verðmætasköpunar í þágu íslensks samfélags og þjóðar. Framlög í afmælissjóðinn verða  árangurstengd og höfð hliðsjón af því hvernig miðar í sókn HÍ að markmiðum í samræmi við árangursmælikvarða.Sumarið 2010 gaf mennta- og menningarmálaráðuneytið út stefnu um opinbera háskóla. Með henni er ætlunin að standa vörð um starfsemi þeirra með því að stofna samstarfsnet, með hugsanlega sameiningu í huga. Markmiðið er þríþætt: Í fyrsta lagi að efla háskólakennslu, rannsóknir og nýsköpun til styrktar framtíðaruppbyggingu íslensks samfélags. Í öðru lagi að hagræða í rekstri háskólanna þannig að fjármunir nýtist sem allra best. Í þriðja lagi að halda uppi öflugri og fjölbreyttri háskólastarfsemi víðs vegar á landinu. Miðað er við að aðrar háskóla- og rannsóknastofnanir geti tekið þátt í starfi netsins, óháð rekstrarformi. Rektorar opinberu háskólanna undirrituðu nú í vikunni samstarfssamning um greiðan aðgang nemenda að námskeiðum á milli skólanna og byggir hann á vönduðum undirbúningi sem staðið hefur yfir undanfarið ár.

Til að auka gæði allra skóla á háskólastigi hér á landi þarf að setja gæðaviðmið og fylgjast með hvort þeim sé náð. Sérstakir vinnu- og rýnihópar á vegum mennta- og menningarmálaráðuneytisins voru settir á stofn árið 2009, til að móta leiðir fyrir íslenska háskólakerfið. Ein af tillögum þessara vinnuhópa var að efla eftirlit með gæðum þeirrar starfsemi sem fram fer innan veggja íslenskra háskóla. Niðurstaðan varð að stofna hér á landi gæðaráð skipað erlendum sérfræðingum. Við þessa ákvörðun var tekið mið af stefnu Vísinda og tækniráðs, Byggt á styrkum stoðum, en þar er kveðið á um að efla beri formlegt eftirlit með gæðum kennslu og rannsókna við háskóla.. Gæðaráð háskólanna var svo formlega stofnað árið 2010 eftir undirbúning á vegum ráðuneytisins í samstarfi við Rannís, háskólana og Norman Sharp, fyrrverandi yfirmann þeirrar stofnunar sem fer með gæðaeftirlit við skoska háskóla.

Formaður gæðaráðsins hér á landi  er fyrrgreindur Norman Sharp. Honum til halds og trausts eru Barbara Brittingham, framkvæmdastjóri hjá New England Association of Schools and Colleges, sem meðal annars annast ytra gæðaeftirlit með háskólum eins og MIT, Brandeis og Harvard, Tove Bull, fyrrum rektor háskólans í Tromsö, Rita McAllister; skoskur sérfræðingur í listmenntun og fyrrum prófessor, Jean-Marie Hombert, prófessor við Háskólann í Lyon í Frakklandi og hinn enski Frank Quinault, prófessor við Háskólann í St. Andrews. Eftir sem áður munu færustu fagsérfræðingar sem völ er á annast einstakar úttektir og munu meðlimir gæðaráðsins einvörðungu taka þátt í úttektum þar sem sérfræðiþekking þeirra nýtist.

Til að tryggja aðkomu hagsmunaaðila háskóla og efla gagnsæi og upplýsingaflæði á milli ráðsins og háskólasamfélagins hefur ennfremur verið sett á stofn ráðgjafanefnd gæðaráðs. Í henni eiga sæti fulltrúar  mennta- og menningarmálaráðuneytis, háskóla, Vísinda- og tækniráðs og stúdenta.

Markmið gæðaráðsins er meðal annars að tryggja gæði háskólastarfsemi hér á landi, bæði á sviði rannsókna og kennslu, að tryggja samkeppnishæfni háskólanna og færa gæðaeftirlit til samræmis við þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland hefur tekið á sig.

Gæðaráðið mótar aðferðafræði fyrir mat á gæðum í kennslu og rannsóknum og mun gera tillögu til ráðherra um þriggja ára áætlun um eftirlit með kennslu og rannsóknum við íslenska háskóla. Það hefur mótað skýra stefnu um gæðaeftirlit á háskólastigi, sem m.a. gerir kröfur um að skólarnir viðhaldi ábyrgu innra gæðaeftirliti og felur í sér áætlun um ytra eftirlit. Stefnan er sett fram í gæðahandbók, sem var kynnt á ráðstefnu um gæðamál háskólanna 18. október sl.  Í henni eru sett fram mælanleg markmið sem háskólar verða að uppfylla og munu úrskurðir gæðaráðsins verða birtir opinberlega. Sett hafa verið skýr markmið og tímarammi um hvenær og hversu oft viðkomandi háskólar skulu gangast undir opinbert ytra gæðaeftirlit.

Ljóst má vera að það eru miklar hræringar í íslensku háskólaumhverfi. Leiðarljósin eru skýr: Efla kennslu og rannsóknir um land allt með auknu samstarfi og öflugu gæðaeftirliti.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta