Nýtum tímann og finnum leiðir
Allt frá því að faraldurinn braust út hef ég verið í miklum samskiptum við skólastjórnendur, fulltrúa kennara og ekki síst framhaldsskólanema. Af samtölum við nemendur má ráða að þeirra heitasta ósk sé að komast í skólann sinn og efla sinn vitsmuna- og félagsþroska samhliða náminu. Hér skal tekið fram, að margir hafa náð góðum tökum á fjarnáminu og því ekki farið á mis við námsefnið sjálft, en félagslega hliðin hefur visnað og núverandi fyrirkomulag er að mínu mati ekki sjálfbært. Það tekur hressilegan taktinn úr daglegu lífi unga fólksins, eykur líkurnar á félagslegri einangrun, andlegri vanlíðan og skapar jafnvel spennu í samskiptum þeirra við foreldra.
Sóttvarnarreglur veita skólastjórnendum lítið svigrúm, en við ætlum að nýta tímann vel og lenda hlaupandi um leið og tækifæri gefst til aukins staðnáms. Í því samhengi höfum við skoðað ýmsar leiðir, fundað með landlækni og sóttvarnarlækni um horfur og mögulegar lausnir, kannað hvort leiga á viðbótarhúsnæði myndi nýtast skólunum – t.d. ráðstefnusalir, kvikmynda- og íþróttahús sem nú standa tóm – og hvernig megi tryggja stöðugleika í skólastarfinu óháð Covid-sveiflum í samfélaginu. Þeirri vinnu ætlum við að hraða og styðja skólastjórnendur með ráðum og dáð, svo ungmennin lokist ekki inni í herbergjum sínum út veturinn. Öllum hugvekjandi tillögum má velta upp, hvort sem þær snúa að tvísetningu framhaldsskólanna, vaktafyrirkomulagi í kennslu eða nýtingu grunnskólahúsnæðis sem er vannýtt hluta dagsins.
Í gömlu lagi segir að fátt sé svo með öllu illt að ei boði gott – að finna megi út úr öllu ánægjuvott. Þannig sýna mælingar framhaldsskólanna að brotthvarf sé minna nú en oft áður. Að verkefnaskil og prófaundirbúningur gangi vel. Að nemendur sem ekki komast úr húsi sofi meira og hvílist betur en félagslyndir framhaldsskólanemar gera að öllu jöfnu. Slíkar fréttir eru góðar en breyta ekki þeirri staðreynd að félagsstarf og samskipti við aðra er órjúfanlegur þáttur í góðri menntun