Um erindi til ráðuneytisins
Erindi til ráðuneytisins skal senda í gegnum netfangið [email protected]. Starfsfólk skjalastýringar ráðuneytisins beinir þeim í réttan farveg innan ráðuneytisins og leiðbeinir ef erindið á betur heima hjá annarri stofnun eða ráðuneyti.
Til að auðvelda og flýta afgreiðslu erinda er gott að hafa eftirfarandi til hliðsjónar:
- Að taka skýrt fram í efnislínu eða upphafi texta hvaða málefni á málefnasviði ráðuneytisins erindið snertir.
- Ef málið varðar t.d. beinar fyrirspurnir eða óskir um fund er gott að láta fylgja með hnitmiðaðar upplýsingar þar sem mikilvægt samhengi málsins er kynnt.
- Ef erindið varðar beiðni um styrk er gott að hafa kynnt sér fyrst þá styrki og sjóði sem í boði eru.
Ráðuneytinu berast margar fyrirspurnir og erindi og afgreiðsla þeirra tekur mislangan tíma.
Erindi sem berast ráðuneytinu eru skráð í málaskrá og yfirlit hennar er birt á vef Stjórnarráðsins. Upplýsingalög gilda um gögn og erindi sem berast til ráðuneytisins.
Nánari leiðbeiningar um tilhögun erinda er hægt að fá með því að hafa beint samband í síma 545 9500.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.