Stjórn Sjúkratrygginga Íslands
Samkvæmt 6. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, skipar heilbrigðisráðherra fimm menn í stjórn Sjúkratrygginga Íslands.
Stjórnin skal staðfesta skipulag stofnunarinnar, árlega starfsáætlun og fjárhagsáætlun og marka henni langtímastefnu. Skal stjórnin hafa eftirlit með starfsemi stofnunarinnar og að rekstur hennar sé innan ramma fjárlaga á hverjum tíma.
Formaður stjórnarinnar skal reglulega gera ráðherra grein fyrir starfsemi hennar og gera honum viðvart ef starfsemi og þjónusta er ekki í samræmi við ákvæði laga og ef rekstur er ekki í samræmi við fjárlög.
Aðalmenn
- Eygló Harðardóttir, fyrrverandi ráðherra, formaður
- Guðmundur Magnússon, rekstrarverkfræðingur, varaformaður
- Gunnar Sær Ragnarsson, lögfræðingur
- Jónína Guðmundsdóttir, mannauðsráðgjafi
- Ólafía B. Rafnsdóttir, ráðgjafi
Varamenn
- Ívar Atli Sigurjónsson, flugmaður
- Kristín Hermannsdóttir, viðskiptafræðingur
Stjórnin er skipuð frá 29. mars 2022 til 28. mars 2026.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.