Svæðisráð rekstrarsvæðis 1, norðursvæðis, í Vatnajökulsþjóðgarði
Skipað18. janúar 2024.
Rekstrarsvæði Vatnajökulsþjóðgarðs eru rekin sem sjálfstæðar rekstrareiningar á ábyrgð þjóðgarðsvarðar og eru mörk rekstrarsvæða tilgreind í reglugerð um Vatnajökulsþjóðgarð nr. 608/2008, með síðari breytingum.
Svæðisráðið er skipað til fjögurra ára í senn skv. 7. gr. laga nr. 60/2007 um Vatnajökulsþjóðgarð. Í svæðisráði skulu sitja sex fulltrúar: þrír fulltrúar tilnefndir af sveitarstjórnum þeirra sveitarfélaga sem eru á viðkomandi rekstrarsvæði, einn fulltrúi tilnefndur sameiginlega af ferðamálasamtökum á viðkomandi svæði, einn fulltrúi tilnefndur af útivistarsamtökum og einn fulltrúi tilnefndur af umhverfisverndarsamtökum. Sömu aðilar tilnefna jafnmarga varamenn sem eru skipaðir með sama hætti. Svæðisráð kýs sér formann úr hópi sveitarstjórnarmanna og varaformann. Þjóðgarðsvörður situr fundi svæðisráðs.
Hlutverk svæðisráða Vatnajökulsþjóðgarðs skv. 8. gr. laganna er að vera þjóðgarðsverði og stjórn Vatnajökulsþjóðgarðs til ráðgjafar um málefni þjóðgarðsins á viðkomandi rekstrarsvæði, að hafa yfirumsjón með gerð tillögu að verndaráætlun fyrir viðkomandi svæði, að samþykkja tillögu að rekstraráætlun fyrir viðkomandi rekstrarsvæði innan þess fjárhagsramma sem því er ætlaður hverju sinni samkvæmt ákvörðun stjórnar og að gera tillögu að ráðningu þjóðgarðsvarða á viðkomandi rekstrarsvæði.
Samkvæmt tilnefningu Norðurþings
Soffía Gísladóttir, formaður
Aldey Unnar Traustadóttir, varafulltrúi
Samkvæmt tilnefningu Þingeyjarsveitar
Gerður Sigtryggsdóttir, varaformaður
Árni Pétur Hilmarsson
Anna Guðný Baldursdóttir, varafulltrúi
Jóna Björg Hlöðversdóttir, varafulltrúi
Samkvæmt tilnefningu umhverfis- og náttúruverndarsamtaka
Hjördís Finnbogadóttir
Guðrún S. Tryggvadóttir, varafulltrúi
Samkvæmt tilnefningu Samtaka útivistarfélaga
Grétar G. Ingvarsson
Yngvi Ragnar Kristjánsson, varafulltrúi
Samkvæmt tilnefningu Ferðamálasamtaka Norðurlands eystra
Arnheiður Jóhannsdóttir
Hjalti P. Þórarinsson, varafulltrúi
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.