Sveinsprófsnefnd í bakaraiðn 2023-2027
Sveinsprófsnefnd í bakaraiðn er skipuð samkvæmt 30. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.
Nefndin er svo skipuð:
Aðalmenn:
- Alfreð Freyr Karlsson, án tilnefningar
- Sigurður Már Guðjónsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina
- Davíð Freyr Jóhannsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina
Varamenn:
- Daníel Kjartan Ármannsson, án tilnefningar
- Sigurður Örn Þorleifsson, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina
- Þórey Lovísa Sigurmundsdóttir, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina
Skipunartími nefndarinnar er frá 27. mars 2023 til 26. mars 2027.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.