Sveinsprófsnefnd í rennismíði 2024-2028
Sveinsprófsnefnd í rennismíði er skipuð samkvæmt 30. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.
Nefndin er svo skipuð:
Aðalmenn:
Steindór Hrannar Grímarsson, kt. 221272-4049, án tilnefningar,
Helgi Stefánsson, kt. 020655-5859, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina,
Sigurður Maríasson, kt. 150885-3379, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina.
Varamenn:
Ágúst Guðmundsson, kt. 040975-4549, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina,
Lárus Helgason, kt. 160191-2369, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina,
Hilmar Bjartmarz, kt. 240586-2589, samkvæmt tilnefningu starfsgreinaráðs málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina.
Skipunartími nefndarinnar er frá 30. maí 2024 til 29. maí 2028. Nefndin kýs sér formann.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.