Úrskurðarnefnd náttúruhamfaratryggingar, skv. 19. gr. laga nr. 55/1992
Ráðherra skipar fjögurra manna úrskurðarnefnd sem úrskurðar um ágreining um ákvarðanir Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Nefndin starfar samkvæmt 19. grein laga um Náttúruhamfaratryggingu Íslands.
Grundvöllur: ,Skv. 19. gr. laga um Náttúruhamfartryggingu Íslands.
Fjórir skulu eiga sæti í nefndinni. Einn skal skipaður samkvæmt tilnefningu Hæstaréttar og skal hann vera formaður og hafa sérþekkingu á sviði vátryggingaréttar. Annar skal skipaður eftir tilnefningu verkfræði- og náttúruvísindasviðs Háskóla Íslands og skal hann hafa sérþekkingu á sviði mannvirkja. Hinir tveir skulu skipaðir án tilnefningar og hafa sérþekkingu á sviði vátryggingaréttar, mannvirkja eða tjónamats. Varamenn skulu skipaðir á sama hátt. Nefndinni er heimilt að leita aðstoðar sérfræðinga ef ástæða þykir.
Í nefndinni sitja:
- Helgi Birgisson, formaður, tilnefndur af Hæstarétti Íslands
- Guðrún Ólafsdóttir, án tilnefningar
- Sólveig Þorvaldsdóttir, tilnefnd af Háskóla Íslands
- Stefán Már Stefánsson, án tilnefningar
Til vara:
- Valgerður Sólnes, tilnefnd af Hæstarétti Íslands
- Guðbjartur Jón Einarsson, án tilnefningar
- Benedikt Halldórsson, tilnefndur af Háskóla Íslands
- Þóra Hallgrímsdóttir, án tilnefningar
Kærur til úrskurðarnefndarinnar skulu berast:
Úrskurðarnefnd náttúruhamfaratryggingar
b.t. Helga Birgissonar hrl.
Forum lögmenn,
Ármúla 13,
108 Reykjavík
Óskað er eftir að afrit af rafrænum kærum séu sendar á netfangið [email protected].
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.