Úrskurðarnefnd velferðarmála
Með lögum um úrskurðarnefnd velferðarmála nr. 85/2015 voru eftirtaldar sex úrskurðar- og kærunefndir sameinaðar: kærunefnd barnaverndarmála, kærunefnd greiðsluaðlögunarmála, úrskurðarnefnd almannatrygginga, úrskurðarnefnd atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða, úrskurðarnefnd félagsþjónustu og húsnæðismála og úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála.
Úrskurðarnefnd velferðarmála skal skipuð tólf nefndarmönnum. Ráðherra skipar formann úrskurðarnefndarinnar og þrjá nefndarmenn í fullt starf til fimm ára. Þá skipar ráðherra átta aðra nefndarmenn og jafnmarga til vara til fjögurra ára í senn.
Úrskurðarnefndin skal starfa í fjórum þriggja manna deildum og ákveður formaður hvernig nefndin er skipuð í hverju máli. Formaður eða nefndarmaður sem skipaður er í fullt starf stýrir störfum nefndarinnar við umfjöllun máls. Um hlutverk nefndarinnar og starfshætti er að öðru leyti vísað til laga um úrskurðarnefnd velferðarmála nr. 85/2015.
- Vefur úrskurðarnefndar velferðarmála
- Úrskurðir á sviði almannatrygginga
- Úrskurðir á sviði atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða
- Úrskurðir á sviði barnaverndarmál
- Úrskurðir á sviði fæðingar- og foreldraorlofs
- Úrskurðir á sviði félagsþjónustu og húsnæðismála
- Úrskurðir á sviði greiðsluaðlögunarmála
Skipaðir í fullt starf til fimm ára:
- Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir, formaður
- Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir
- Kári Gunndórsson
- Rakel Þorsteinsdóttir
Aðrir nefndarmenn:
- Agnar Bragi Bragason
- Arnar Kristinsson
- Björn Jóhannesson
- Eva Dís Pálmadóttir
- Guðfinna Eydal
- Kristinn Tómasson
- Unnþór Jónsson
- Þórhildur Líndal
Varamenn:
- Ari Karlsson
- Erla Guðrún Ingimundardóttir
- Guðmundur Ómar Hafsteinsson
- Guðríður Anna Kristjánsdóttir
- Helgi Viborg
- Hrafnhildur Árnadóttir
- Jón Baldursson
- Margrét Gunnlaugsdóttir
Skipuð af félags- og vinnumarkaðsráðherra frá 24. febrúar 2024 til 23. febrúar 2028
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.