Úthlutunarnefnd launasjóðs hönnuða
Úthlutun starfslauna úr launasjóði hönnuða sbr. ákvæði 6. gr. laga nr. 57/2009 um listamannalaun og reglugerðar um listamannalaun nr. 834/2009.
Launasjóður hönnuða.
Þriggja manna nefnd, sem ráðherra skipar árlega og eigi síðar en 15. ágúst samkvæmt tillögum samtaka hönnuða og arkitekta, úthlutar fé úr launasjóði hönnuða. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Úthlutunarnefndin skiptir með sér verkum.
Tilnefningum af hálfu tilnefningaraðila skal hagað þannig að á aðalfundi eða formlega boðuðum félagsfundi er ákveðið hvernig staðið skuli að tilnefningu. Við tilnefningu skal leitast við að tryggja sem jafnastan hlut karla og kvenna í úthlutunarnefndum og þess skal gætt að sami aðili verði ekki tilnefndur oftar en þrjú ár í röð.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.