Úthlutunarnefnd launasjóðs myndlistarmanna
Úthlutun starfslauna úr launasjóði myndlistarmanna sbr. ákvæði 7. gr. laga nr. 57/2009 um listamannalaun og reglugerðar um listamannalaun nr. 834/2009.
Þriggja manna nefnd, sem ráðherra skipar árlega og eigi síðar en 15. ágúst samkvæmt tillögum Sambands íslenskra myndlistarmanna, úthlutar fé úr launasjóði myndlistarmanna. Varamenn skulu skipaðir með sama hætti. Úthlutunarnefndin skiptir með sér verkum.
Tilnefningum af hálfu tilnefningaraðila skal hagað þannig að á aðalfundi eða formlega boðuðum félagsfundi er ákveðið hvernig staðið skuli að tilnefningu. Við tilnefningu skal leitast við að tryggja sem jafnastan hlut karla og kvenna í úthlutunarnefndum og þess skal gætt að sami aðili verði ekki tilnefndur oftar en þrjú ár í röð.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.