Vinnumarkaðsráð Austurlands
Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar ráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð eru tilnefndir tveir ráðsmenn af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt er einn ráðsmaður tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði, einn af mennta- og menningarmálaráðherra og einn skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi þeirra sem tilnefndir eru sem aðalmenn.
Vinnumarkaðsráð á hverju svæði skal skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skulu vinnumarkaðsráðin vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.
Aðalmenn
- Helga Þórarinsdóttir, án tilnefningar, formaður
- Þorkell Kolbeins, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, varaformaður
- Baldur Baldursson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands - samtökum opinberra starfsmanna
- Anna Alexandersdóttir, tiln. af mennta- og menningarmálaráðneyti
- Hákon Ernuson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Auður Anna Ingólfsdóttir, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Hildur Þórisdóttir, tiln. af Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi
Varamenn
- Örvar Jóhannsson, án tilnefningar
- Sigurbjörg Kristmundsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
- Hafsteinn Ólason, tiln. af Alþýðusambandi Íslands - samtökum opinberra starfsmanna
- Kjartan Glúmur Kjartansson, tiln. af mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Benedikt Jóhannsson, af Samtökum atvinnulífsins
- Gunnþór Ingvason, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Gunnar Jónsson, tiln. af Sambandi sveitarfélaga á Austurlandi
Skipað af félags- og húsnæðismálaráðherra frá 17. september 2015 til 16. september 2019.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.