Vinnumarkaðsráð höfuðborgarsvæðisins
Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar ráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð eru tilnefndir tveir ráðsmenn af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt er einn ráðsmaður tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði, einn af mennta- og menningarmálaráðherra og einn skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi þeirra sem tilnefndir eru sem aðalmenn.
Vinnumarkaðsráð á hverju svæði skal skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skulu vinnumarkaðsráðin vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.
Aðalmenn
- Þórunn Kolbeins Matthíasdóttir, án tilnefningar, formaður
- Vignir Eyþórsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, varaformaður
- Páll Svavarsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands - samtökum opinberra starfsmanna
- Sólveig Hildur Björnsdóttir, tiln. af mennta- og menningarmálaráðneyti
- Kolbeinn Finnsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Halldór Árnason, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Helga Björg Ragnarsdóttir, tiln. af Samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Varamenn
- Sigurbjörn Úlfarsson, án tilnefningar
- Sigurrós Kristinsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
- Jófríður Hanna Sigfúsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands - samtökum opinberra starfsmanna
- Haukur Harðarson, tiln. af mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Bergþóra Halldórsdóttir, af Samtökum atvinnulífsins
- Ragnar Árnason, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Ragnhildur Ísaksdóttir, tiln. af samtökum sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu
Skipað af félags- og húsnæðismálaráðherra frá 22. september 2015 til 21. september 2019.
"
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.