Vinnumarkaðsráð Norðurlands vestra
Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar ráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð eru tilnefndir tveir ráðsmenn af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt er einn ráðsmaður tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði, einn af mennta- og menningarmálaráðherra og einn skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi þeirra sem tilnefndir eru sem aðalmenn.
Vinnumarkaðsráð á hverju svæði skal skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skulu vinnumarkaðsráðin vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.
Aðalmenn
- Valgarður Hilmarsson, án tilnefningar, formaður
- Aðalbjörg Valdimarsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands, varaformaður
- Árni Egilsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands - samtökum opinberra starfsmanna
- Bryndís Kristín Williams, tiln. af mennta- og menningarmálaráðneyti
- Jón Halldórsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Guðmundur Örn Guðmundsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Dagný Rósa Úlfarsdóttir, tiln. af Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Varamenn
- Þórdís Friðbjörnsdóttir, án tilnefningar
- Þórarinn Sverrisson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands
- Vernharð Guðnason, tiln. af Alþýðusambandi Íslands - samtökum opinberra starfsmanna
- Jóhann Ingólfsson, tiln. af mennta- og menningarmálaráðuneyti
- Adolf H. Berndsen, tiln. af Samtökum atvinnulífsins
- Gunnlaugur Sighvatsson, af Samtökum atvinnulífsins
- Leó Örn Þorleifsson, tiln. af Sambandi sveitarfélaga á Norðurlandi vestra
Skipað af félags- og húsnæðismálaráðherra frá 23. nóvember 2015 til 22. nóvember 2019.
"Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.