Vinnumarkaðsráð Suðurnesja
Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar ráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð eru tilnefndir tveir ráðsmenn af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt er einn ráðsmaður tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði, einn af mennta- og menningarmálaráðherra og einn skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi þeirra sem tilnefndir eru sem aðalmenn.
Vinnumarkaðsráð á hverju svæði skal skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skulu vinnumarkaðsráðin vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.
Aðalmenn
- Trausti Arngrímsson - án tilnefningar formaður
- Guðbjörg Kristmundsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
- Gunnur Líf Gunnarsdóttir - tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
- Stefán Sigurðsson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- Stefán B. Ólafsson - tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands - opinberir starfsmenn
- Guðjónína Sæmundsdóttir - tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
- Dagný Gísladóttir - tilnefnd af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum
Varamenn
- Eva Stefánsdóttir - án tilnefningar
- Bryndís Kristjánsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
- Falur Harðarson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- Elín Árnadóttir - tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
- Ingvar G. Georgsson - tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands - opinberir starfsmenn
- Nanna Bára Maríasdóttir - tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
- Berglind Kristinsdóttir - tilnefnd af Sambandi sveitarfélaga á Suðurnesjum
Skipað af félags- og barnamálaráðherra frá 1. september 2020 til 1. september 2024
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.