Vinnumarkaðsráð Vesturlands
Samkvæmt 6. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skipar ráðherra sjö manna svæðisbundin vinnumarkaðsráð. Í hvert vinnumarkaðsráð eru tilnefndir tveir ráðsmenn af samtökum launafólks á hverju svæði og tveir af samtökum atvinnurekenda. Jafnframt er einn ráðsmaður tilnefndur af sveitarfélögum á hverju svæði, einn af mennta- og menningarmálaráðherra og einn skipaður án tilnefningar. Ráðherra skipar formann og varaformann úr hópi þeirra sem tilnefndir eru sem aðalmenn.
Vinnumarkaðsráð á hverju svæði skal skila skýrslu til stjórnar Vinnumálastofnunar um stöðu atvinnumála í nóvember ár hvert ásamt tillögum um þær vinnumarkaðsaðgerðir sem mælt er með að lögð verði áhersla á árið eftir. Enn fremur skulu vinnumarkaðsráðin vera hlutaðeigandi þjónustustöð Vinnumálastofnunar til ráðgjafar um skipulag og val á vinnumarkaðsúrræðum.
Aðalmenn
- Davíð Sigurðsson - án tilnefningar formaður
- Daði Jörgensson - tilnefndur af Alþýðusambandi Íslands
- Guðmundur Smári Guðmundsson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- Bolli Árnason - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- Helga Hafsteinsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands - opinberir starfsmenn
- Inga Dóra Halldórsdóttir - tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
- Valgarð Jónsson - tilnefndur af samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi.
Varamenn
- Liv Aase Skarstad - án tilnefningar
- Anna Ágústa Halldórsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands
- Ólafur Rögnvaldsson - tilnefndur af Samtökum atvinnulífsins
- Sigríður Margrét Guðmundsdóttir - tilnefnd af Samtökum atvinnulífsins
- Ingveldur Jónsdóttir - tilnefnd af Alþýðusambandi Íslands - opinberir starfsmenn
- Hrafnhildur Hallvarðsdóttir - tilnefnd af mennta- og menningarmálaráðuneytinu
Skipað af félags- og barnamálaráðherra frá 24. ágúst 2020 til 24. ágúst 2024.
"Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.