Yfirfasteignamatsnefnd
Yfirfasteignamatsnefnd annast yfirmat fasteigna fyrir landið allt. Í 34.gr. laga um skráningu og mat fasteigna nr. 6/2001 segir: „Hagsmunaaðilar geta kært niðurstöðu endurmats til yfirfasteignamatsnefndar. Kæra skal vera skrifleg og studd rökum og nauðsynlegum gögnum. Um meðferð máls fyrir nefndinni, framlagningu gagna eða málflutning fer eftir ákvörðun nefndarinnar. Nefndin skal úrskurða slíkt mál innan þriggja mánaða frá kæru nema sérstök heimild fyrir frestun sé veitt af hálfu ráðuneytisins. Niðurstaða kærumáls skal þegar tilkynnt aðila þess og nýtt matsverð þegar skráð í fasteignaskrá. Úrskurður yfirfasteignamatsnefndar er fullnaðarúrskurður.“
Yfirfasteignamatsnefnd er þannig skipuð:
- Björn Jóhannesson, lögmaður og jafnframt formaður,
- Valgerður Sólnes, lektor.
- Axel Hall, lektor.
Varamenn:
- Áslaug Árnadóttir, lögmaður og jafnframt varaformaður,
- Guðríður Friðriksdóttir, verkfræðingur,
- Sigurður Jóhannesson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar
Netfang nefndarinnar er [email protected].
Nefndin er til húsa í Síðumúla 24, 108 Reykjavík
Nefndin er skipuð frá og með 15. maí 2022 til og með 14. maí 2025.