Samráðsnefnd um framkvæmd samkomulags um stuðning við tónlistarnám
Nefndin er skipuð skv. 5. grein samkomulags um stuðning við tónlistarnám og jöfnun á aðstöðumun nemenda til tónlistarnáms 2022-2024. Hlutverk samráðsnefndarinnar er að fylgjast með framkvæmd samkomulagsins.
Nefndin er þannig skipuð:
- Óskar Haukur Níelsson, formaður, án tilnefningar
- Hilda Hrund Cortes, samkvæmt tilnefningu fjármála- og efnahagsráðuneytis
- Soffía Vagnsdóttir, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Valgerður Rún Benediktsdóttir, samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga
- Gústav Aron Gústavsson, samkvæmt tilnefningu innviðaráðuneytis
Skipunartími nefndarinnar er til 31. desember 2024.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.