Starfsgreinanefnd 2024-2027
Mennta- og barnamálaráðherra skipar í starfsgreinanefnd, sbr. ákvæði 27. gr. laga nr. 92/2008 um framhaldsskóla og reglugerðar nr. 711/2009 með síðari breytingum. Formenn starfsgreinaráða skipa sérstaka starfsgreinanefnd, ásamt formanni og varaformanni sem eru skipaðir án tilnefningar. Hlutverk nefndarinnar er að vera ráðherra til ráðgjafar um stefnumótun í starfsnámi og framkvæmd starfsnáms, að vera vettvangur samráðs og samræmingar milli starfsgreinaráða og að veita álit á skiptingu og flokkun starfsgreina milli starfsgreinaráða.
Skipunartími nefndarinnar er til 8. maí 2027.
Starfsgreinanefnd er svo skipuð:
- Ragnhildur Bolladóttir, án tilnefningar, formaður
- Nanna Berglind Traustadóttir, án tilnefningar, varaformaður
- Dagmar Huld Matthíasdóttir, starfsgreinaráði heilbrigðis-, félags- og uppeldisgreina
- Georg Páll Skúlason, starfsgreinaráði upplýsinga- og fjölmiðlagreina
- Guðríður Helgadóttir, starfsgreinaráði umhverfis- og landbúnaðargreina
- Hafdís Grétarsdóttir, starfsgreinaráði snyrtigreina
- Halldór Arnar Guðmundsson, starfsgreinaráði málmtækni-, vélstjórnar- og framleiðslugreina
- Haraldur Jóhann Sæmundsson, starfsgreinaráði matvæla-, veitinga- og ferðaþjónustugreina
- Hilmar Harðarson, starfsgreinaráði samgöngu-, farartækja- og flutningsgreina
- Jón Bjarni Jónsson, starfsgreinaráði bygginga- og mannvirkjagreina
- Lárus Gunnsteinsson, starfsgreinaráði hönnunar- og handverksgreina
- Óskar Ingi Sigurðsson, starfsgreinaráði rafiðngreina
- Selma Kristjánsdóttir, starfsgreinaráði skrifstofu- og verslunargreina
- Vilbergur Magni Óskarsson, starfsgreinaráði sjávarútvegs- og siglingagreina.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.