Starfshópur vegna vinnu við að skrifa drög að reglugerð um menntun, réttindi og skyldur dýralækna og heilbrigðisstarfsmanna dýra
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur skipað starfshóp sem hefur það hlutverk að skrifa drög að reglugerð um menntun, réttindi og skyldur dýralækna og heilbrigðisstarfsmanna dýra.
Sæti í starfshópnum eiga:
Þóra Jónasdóttir, formaður, tilnefnd af Matvælastofnun,
Ólafur Grétar Kristjánsson, tilnefndur af mennta- og menningarmálaráðuneytinu,
Jóhanna Þorkelsdóttir, tilnefnd af Dýralæknafélagi Íslands,
Erna Þorsteinsdóttir, fagdýrahjúkrunarfræðingur.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.