Starfshópur sem falið er að vinna að samræmdri skráningu upplýsinga og skilvirkari gagnaöflun í þjónustu við fatlað fólk
Þann 15. desember 2023 undirrituðu félags- og vinnumarkaðsráðherra, innviðaráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra og Samband íslenskra sveitarfélaga samkomulag um breytingu á fjármögnun þjónustu við fatlað fólk. Samkomulagið kveður m.a. á um tryggja skuli samræmda skráningu upplýsinga og skilvirka gagnaöflun milli sveitarfélaga og þjónustusvæða sem nýtist við opinbert eftirlit með þjónustu við fatlað fólk.
Starfshópinn skipa:
- Vignir Örn Hafþórsson, án tilnefningar, formaður hópsins
- Anna Gunnhildur Ólafsdóttir, tilnefnd af innviðaráðuneyti
- Helgi Aðalsteinsson, tilnefndur af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Ómar Sævar Harðarson, tilnefndur af Hagstofu Íslands
- Tinna Björg Sigurðardóttir, tilnefnd af Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
- Guðmundur Sigmarsson, tilnefndur af velferðarsviði Reykjavíkurborgar
Til vara:
- Elmar Björnsson, tilnefndur af innviðaráðuneyti
- Svanhildur Þorsteinsdóttir, tilnefnd af Gæða- og eftirlitsstofnun velferðarmála
Starfshópurinn skal skila tillögum sínum eigi síðar en 30. júní 2024.
Ekki er gert ráð fyrir að greidd verði þóknun fyrir setu í starfshópnum af hálfu ráðuneytisins.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.