Sveinsprófsnefnd í úrsmíði 2022-2026
Sveinsprófsnefnd í úrsmíði er skipuð samkvæmt 30. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 og reglugerð nr. 698/2009 um sveinspróf. Hlutverk nefndarinnar er að sjá um framkvæmd sveinsprófs í iðninni fyrir landið allt, þar með talið mat á úrlausnum, svo og þau verkefni sem ráðuneytið kann að fela nefndinni sérstaklega og varða sveinspróf.
Nefndin er svo skipuð:
- Georg Viðar Hannah, án tilnefningar
- Birgir Þór Stefánsson, skv. tilnefningu starfsgreinaráðs hönnunar- og handverksgreina
- Garðar Ólafsson, skv. tilnefningu starfsgreinaráðs hönnunar- og handverksgreina
Skipunartími er frá 31. október 2022 til 30. október 2026.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.