Stjórn Vinnumálastofnunar
Samkvæmt 2. mgr. 5. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, nr. 55/2006, skal stjórn Vinnumálastofnunar hafa eftirlit með rekstri og starfsemi stofnunarinnar. Stjórninni er meðal annars ætlað að fjalla um og samþykkja starfs- og fjárhagsáætlun stofnunarinnar sem forstjóri leggur fyrir stjórnina eigi síðar en í desember vegna komandi rekstrarárs sem og að annast faglega stefnumótun á sviði vinnumarkaðsaðgerða og gera ráðherra grein fyrir atvinnuástandi og árangri vinnumarkaðsaðgerða í skýrslu í lok hvers árs.
Stjórnin er þannig skipuð:
- Huginn Freyr Þorsteinsson, án tilnefningar, formaður.
- Lilja Birgisdóttir, án tilnefningar, varaformaður.
- Halldór Oddsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands.
- Guðbjörg Kristmundsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands.
- Andri Valur Ívarsson, tiln. af Bandalagi háskólamanna.
- Hrannar Már Gunnarsson, tiln. af BSRB.
- Guðný Einarsdóttir, tiln. af fjármála- og efnahagsráðuneyti.
- Sólveig B. Gunnarsdóttir, tiln. af Samtökum atvinnulífsins.
- Jón Rúnar Pálsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins.
- Guðmundur Ari Sigurjónsson, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Varafulltrúar:
- Sjöfn Ingólfsdóttir, án tilnefningar.
- Þórhallur Harðarson, án tilnefningar.
- Helga Ingólfsdóttir, tiln. af Alþýðusambandi Íslands.
- Finnbjörn A. Hermannsson, tiln. af Alþýðusambandi Íslands.
- Kolbrún Halldórsdóttir, tiln. af Bandalagi háskólamanna.
- Arna Jakobína Björnsdóttir, tiln. af BSRB.
- Valgeir Þór Þorvaldsson, tiln. af fjármála- og efnahagsráðuneyti.
- Maj-Britt Hjördís Briem, tiln. af Samtökum atvinnulífsins.
- Guðmundur H. Guðmundsson, tiln. af Samtökum atvinnulífsins.
- Kjartan Magnússon, tiln. af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.
Skipunartími fulltrúa í stjórn Vinnumálastofnunar er til fjögurra ára, frá 17. nóvember 2022 til 17. nóvember 2026. Þóknun til framangreindra fulltrúa er ákveðin af ráðherra, sbr. 5. mgr. 5. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir. Á fulltrúum í stjórn Vinnumálastofnunar hvílir þagnarskylda, sbr. 4. mgr. 5. gr. fyrrnefndra laga.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.