Stýrihópur um verkefni Nýja Landspítalans ohf. - NLSH ohf.
Á fundi ríkisstjórnar Íslands þann 24. maí 2019 var samþykkt tillaga heilbrigðisráðherra og fjármála- og efnahagsráðherra um að skipa stýrihóp sem ætlað er að annast umsjón og samþættingu allra þátta skipulags framkvæmda við Landspítala.
Stýrihópnum er ætlað að hafa yfirsýn yfir öll verkefni NLSH ohf., staðfesta áætlanir og tryggja að verkefnið lúti áherslum stjórnvalda varðandi hlutverk Landspítala, áætlunum um verkefni og rekstur hans og byggi á stefnu í heilbrigðismálum.
Hlutverk stýrihópsins er að bera ábyrgð gagnvart heilbrigðisráðuneytinu og fjármála- og efnhagsráðuneytinu, móta stefnu, annast yfirstjórn og samhæfingu allra þátta verkefnisins og veita ráðgjöf um þróun á hlutverki Landspítala, rekstrarforsendur og umbætur í nýju starfsumhverfi.
Stýrihópinn skipa
- Ásgeir Margeirsson, formaður
- Ásta Valdimarsdóttir, heilbrigðisráðuneytinu
- Hermann Sæmundsson, fjármála- og efnahagsráðuneytinu
- Runólfur Pálsson, Landspítala
- Gunnar Guðni Tómasson, Landsvirkjun
Stýrihópurinn er skipaður af heilbrigðisráðherra frá 25. ágúst 2020 til tveggja ára. Skipun hópsins gildir til 25. ágúst 2026.
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.