Bókasafnaráð 2021-2025
Hlutverk bókasafnaráðs er m.a. að vinna að stefnumörkun um starfsemi bókasafna í samvinnu við Landsbókasafn Íslands-Háskólabókasafn, að veita umsögn um styrkumsóknir úr bókasafnssjóði, setja reglur um söfnun og úrvinnslu tölfræðiupplýsinga. Skv. 4. gr. bókasafnalaga nr. 150/2012.
Ráðið er þannig skipað:
- Linda Hrönn Þórisdóttir formaður, skipuð án tilnefningar,
- Njörður Sigurðsson varaformaður skipaður samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga,
- Hólmkell Hreinsson skipaður samkvæmt tilnefningu Samtaka forstöðumanna almenningsbókasafna,
- Helgi Sigurbjörnsson skipaður samkvæmt tilnefningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða,
- Siggerður Ólöf Sigurðardóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða.
Varamenn:
- Hildur Jörundsdóttir skipuð án tilnefningar,
- Fríða Stefánsdóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Sambands íslenskra sveitarfélaga,
- Pálína Magnúsdóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Samtaka forstöðumanna almenningsbókasafna,
- Margrét Sigurgeirsdóttir skipuð samkvæmt tilnefningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða,
- Guðmann Kristþórsson skipaður samkvæmt tilnefningu Upplýsingar, félags bókasafns- og upplýsingafræða.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.