Dýralæknaráð 2023-2028
Dýralæknaráð starfar samkvæmt 4. gr. laga nr. 66/1998, um dýralækna og heilbrigðisþjónustu við dýr. Matvælaráðherra skipar dýralæknaráð sem skipað er fjórum dýralæknum til fimm ára í senn og er Matvælastofnun til ráðuneytis. Skal einn tilnefndur af Bændasamtökum Íslands, annar af stjórn Dýralæknafélags Íslands, þriðji af stjórn Tilraunastöðvar Háskóla Íslands í meinafræði að Keldum og fjórði án tilnefningar og skal hann jafnframt vera formaður ráðsins. Varamenn skulu tilnefndir á sama hátt.
Ráðið skal ávallt fjalla um innflutning búfjár og erfðaefnis þess sé hans óskað. Einnig skal ráðið fjalla um innflutning annarra dýra, búfjárafurða og aðra þætti er snerta heilbrigðismál dýra og dýraafurða þegar þess er óskað af ráðherra eða Matvælastofnun. Ráðinu er heimilt, ef aðstæður krefja, að kalla sérfræðinga til ráðuneytis.
Í ráðinu eiga sæti:
Aðalmenn:
- Mia Hellsten, skipuð formaður án tilnefningar
- Gísli Sverrir Halldórsson, skipaður án tilnefningar þar til Bændasamtök Íslands tilnefna í ráðið
- Jón Kolbeinn Jónsson, tilnefndur af Dýralæknafélagi Íslands
- Kristbjörg Sara Thorarensen, tilnefnd af Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum
Varamenn:
- Elísabet Hrönn Fjóludóttir, tilnefnd af Dýralæknafélagi Íslands
- Vilhjálmur Svansson, tilnefndur af Tilraunastöð HÍ í meinafræði að Keldum
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.