Hoppa yfir valmynd

Húsnæðis- og skipulagsráð

Innviðaráðuneytið
Innviðaráðherra hefur skipað húsnæðis- og skipulagsráð, sbr. 5. gr. laga um stefnur og aðgerðaáætlanir á sviði húsnæðis- og skipulagsmála, samgangna og byggðamála, nr. 30/2023.

Samkvæmt framangreindum lögum er hlutverk ráðsins m.a. að gera tillögur til ráðherra að stefnum og aðgerðaráætlun að fengnum áherslum ráðherra. Annars vegar húsnæðisstefnu til 15 ára og aðgerðaráætlun til fimm ára og hins vegar landskipulagsstefnu til 15 ára og aðgerðaráætlun til fimm ára. Ráðið skal með virku samráði við samgönguráð og byggðamálaráð gæta að því að tillögur þess uppfylli kröfur um samhæfingu stefna þannig að þær vinni saman og styðji við sameiginlega framtíðarsýn og áherslur ráðherra.

Innviðaráðherra lagði fram á Alþingi tillögur til þingsályktana um húsnæðisstefnu og landsskipulagsstefnu sl. vetur ásamt aðgerðaráætlunum til fimm ára. Báðar tillögurnar voru samþykktar á Alþingi síðastliðið vor. Er ráðinu falið að fylgja aðgerðaráætlunum stefnanna eftir í samráði við ráðuneytið.

Ráðið er svo skipað:

Álfhildur Leifsdóttir, formaður, án tilnefningar,

Henný Hinz, án tilnefningar,

Helga María Pálsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

 

Með ráðinu starfa forstöðumenn Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar ásamt sérfræðingum ráðuneytisins og stofnananna eftir þörfum.

Skipunartími fulltrúa takmarkast við embættistíma ráðherra eða ákvörðun hans.

Ráð og stjórnir
Til baka
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta