Kennararáð 2024-2028
Mennta- og barnamálaráðherra skipar kennararáð, sbr. ákvæði 7. gr. laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Hlutverk kennararáðs er m.a. að:
- veita ráðherra ráðgjöf og leiðbeiningar um þróun hæfniramma með því að gera tillögu um innihald og endurskoðun reglugerðar um hæfniramma fyrir almenna og sérhæfða hæfni kennara og skólastjórnenda,
- veita leiðbeiningar og ráðgjöf um útfærslu hæfniramma á grundvelli þessa kafla og reglugerðar skv. 8. gr.,
- veita ráðgjöf um starfsþróun kennara og skólastjórnenda og notkun hæfniramma við útfærslu og framkvæmd hennar,
- fylgjast með alþjóðlegri þróun og áherslum í menntavísindum og nýta við ráðgjöf um kennaramenntun og starfsþróun,
- veita leiðsögn um mat á sérhæfingu kennara við ráðningu,
- efla vitund um mikilvægi kennarastarfsins í samfélaginu.
Skipunartímabil er frá 10. júlí 2024 – 9. júlí 2028.
Kennararáð er þannig skipað:
Aðalmenn:- Jón Páll Haraldsson, formaður, án tilnefningar
- Sonja Dögg Pálsdóttir, varaformaður, án tilnefningar
- Guðmundur Engilbertsson, tilnefndur af Háskólanum á Akureyri
- Steinunn Inga Óttarsdóttir, tilnefnd af Skólameistarafélagi Íslands
- Svala Hreinsdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Ingimar Ólafsson Waage, tilnefndur af Listaháskóla Íslands
- Freyja Birgisdóttir, tilnefnd af Miðstöð menntunar og skólaþjónustu
- Karen Rut Gísladóttir, tilnefnd af Menntavísindasviði Háskóla Íslands
- Guðjón Hreinn Hauksson, tilnefndur af Kennarasambandi Íslands
- Haraldur Freyr Gíslason, tilnefndur af Kennarasambandi Íslands
- Mjöll Matthíasdóttir, tilnefnd af Kennarasambandi Íslands.
Varamenn:
- Anna María Gunnarsdóttir, án tilnefningar
- Hrafnkell Tumi Kolbeinsson, án tilnefningar
- Kristín Dýrfjörð, tilnefnd af Háskólanum á Akureyri
- Bragi Þór Svavarsson, tilnefndur af Skólameistarafélagi Íslands
- Kristín Jóhannesdóttir, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga
- Kristín Valsdóttir, tilnefnd af Listaháskóla Íslands
- Jóhann Örn Sigurjónsson, tilnefndur af Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu
- Elsa Eiríksdóttir, tilnefnd af Menntavísindasviði Háskóla Íslands
- Jónína Hauksdóttir, tilnefnd af Kennarasambandi Íslands
- Sigrún Grendal Jóhannesdóttir, tilnefnd af Kennarasambandi Íslands
- Þorsteinn Sæberg, tilnefndur af Kennarasambandi Íslands.
Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.