Nefnd um eftirlit með málskostnaði í opinberum málum
Hlutverk nefndarinnar, sem var skipuð í október 2001, er að hafa eftirlit með kostnaði, sem heimfærður er á fjárlagaliðinn málskostnaður í opinberum málum.
Nefndinni er m.a. ætlað að yfirfara reikninga þeirra embætta, sem heimfæra kostnað á fjárlagaliðinn og meta hvort viðkomandi kostnaður falli undir skilgreiningu málskostnaðar eða embættiskostnaðar, hvort skýringar á útgjöldum eru óljósar og hvort fylgigögnum með reikningum sé ábótavant. Nefndinni er ætlað að funda með reglubundnum hætti og móta sér starfsáætlun og verklagsreglur í samráði við ráðuneytið.
Nefndina skipa:
- Jakob Magnússon, fjármála- og starfsmannastjóri Fangelsismálastofnunar, formaður
- Hólmsteinn Gauti Sigurðsson, lögfræðingur hjá sérstökum saksóknara
- Hafdís Guðmundsdóttir, skrifstofustjóri, Fangelsismálastofnun ríkisins.
- Leiðbeiningar um málskostnað í opinberum málum (pdf-skjal)
 ,
"Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.