Prófnefnd verðbréfaréttinda
Prófnefnd verðbréfaréttinda hefur umsjón með prófi til öflunar verðbréfaréttinda sem að jafnaði skal haldið einu sinni á ári. Nefndin starfar á grundvelli 41. gr. laga um markaði fyrir fjármálagerninga, nr. 115/2021.
Ráðherra skipar fimm manna prófnefnd til fjögurra ára í senn. Tveir nefndarmenn skulu vera tilnefndir af samstarfsnefnd háskólastigsins. Skal annar þeirra gegna fullu starfi hjá viðskiptadeild háskóla sem hefur leyfi til að útskrifa viðskiptafræðinga og hinn skal gegna fullu starfi við lagadeild háskóla sem hefur leyfi til að útskrifa lögfræðinga sem metnir eru fullnægjandi að lögum til að öðlast málflutningsréttindi fyrir héraðsdómstólum. Einn nefndarmaður skal tilnefndur af Samtökum fjármálafyrirtækja og einn skal tilnefndur sameiginlega af rekstraraðilum markaða á Íslandi. Einn skal skipa án tilnefningar og skal hann vera formaður nefndarinnar. Varamenn skal skipa með sama hætti.
Í nefndinni sitja (skipuð 2021-2025):
- Guðmundur Kári Kárason, formaður, án tilnefningar
- Hersir Sigurgeirsson, tilnefndur af Samstarfsnefnd háskólastigsins
- Valgerður Sólnes, tilnefnd af Samstarfsnefnd háskólastigsins
- Yngvi Örn Kristinsson, tilnefndur af Samtökum fjármálafyrirtækja
- Árnína Steinunn Kristjánsdóttir, tilnefnd af rekstraraðilum markaða
Til vara:
- Elín Jónsdóttir, tilnefnd af samstarfsnefnd háskólastigsins
- Stefan Wendt, tilnefndur af samstarfsnefnd háskólastigsins
- Jóna Björk Guðnadóttir, tilnefnd af Samtökum fjármálafyrirtækja
- Baldur Thorlacius, tilnefndur af rekstraraðilum markaða
Starfsmaður:
- Ólöf Stefánsdóttir, fjármála- og efnahagsráðuneytinu