Upplýsingar um nýtt fyrirkomulag prófs í verðbréfaviðskiptum sem gengur í gildi 1. október 2020
Helstu breytingar frá núverandi fyrirkomulagi
I. Prófið skiptist í tvö hluta: lögfræði og viðskiptafræði.
Í lögfræðihlutanum reynir á eftirfarandi greinar:
- lög og reglur á fjármálamarkaði,
- almenn siðfræði og tengd löggjöf á fjármálamarkaði,
- aðrar greinar á sviði lögfræði að því marki sem þær skipta máli við umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga:
a. félagaréttur,
b. samninga- og kröfuréttur,
c. gjaldþrotaskipti og sambærileg málsmeðferð,og
d. skaðabótaábyrgð vegna fjárfestingarráðgjafar.
Í viðskiptafræðihlutanum reynir á eftirfarandi greinar:
- verðbréf, afleiður og gjaldeyrir,
- fjárfestingarferli,
- viðskiptahættir,
- aðrar greinar á sviði viðskiptafræði að því marki sem þær skipta máli við umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti og þjónustu með fjármálagerninga og fjárfestingarráðgjöf:
a. skattaleg atriði, og
b. þjóðhagfræði.
II. Prófin verða haldin á tímabilinu mars til júní 2021, þ.m.t. sjúkrapróf, að því gefnu að tilskilinn fjöldi þátttakenda hefur skráð sig í próf (a.m.k. 10 manns).
III. Ekki verða veittar undanþágur frá einstaka prófhlutum. En þeir sem lokið hafa prófi eða öðlast réttindi á Evrópska efnahagssvæðinu sem krafist er í viðkomandi ríki til að vera heimilt að hafa umsjón með daglegri starfsemi í tengslum við viðskipti með fjármálagerninga eiga rétt á, ef þeir óska eftir því við prófnefnd, að fá útgefið skírteini um próf í verðbréfaviðskiptum, sbr. tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins 2005/36/EB um viðurkenningu á faglegri menntun og 2. gr. laga nr. 26/2010 um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til starfa hér á landi.
Drög að nýrri reglugerð og prófefnislýsingu sem gilda munu frá 1. október 2020.
I . Drög að nýrri reglugerð um próf í verðbréfaviðskiptum
II. Drög að nýrri prófefnislýsingu
Athugasemdir við drögin má senda á [email protected].
Prófnefnd verðbréfaréttinda
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.