Hoppa yfir valmynd
20. júní 2024 Matvælaráðuneytið

Norrænt samstarf um fæðuöryggi

Sjávarútvegs-, landbúnaðar-, matvæla- og skógræktarráðherrar Norðurlanda undirrituðu sameiginlega yfirlýsingu varðandi norrænt samstarf á sviði fæðuöryggis.
Í yfirlýsingunni fjalla ráðherrarnir um mikilvægi þess að tryggja fæðuöryggi komandi kynslóða og að sú þörf muni leggja miklar kröfur á herðar norræna samstarfsins.

Á meðal þess sem ráðherrarnir vilja stuðla að eru traustari aðfangakeðjur með aukið áfallaþol, að þróa sambandið á milli hins opinbera og einkageirans, vinna að veikleikagreiningu fyrir fiskveiðar og fiskeldi; efla vinnuna innan One Health (sem fjallar um heilbrigði fólks og dýra, fæðu og umhverfis) og efla samstarfið um viðbúnað á sviði landbúnaðar- og skógræktar. Ráðherrarnir vilja auk þess standa vörð um vinnu Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar (NordGen) við líffræðilega innviði og sérstaklega er nefnd þörfin á því að vera á verði gagnvart fjölþáttaógnum sem kunna að ógna aðfangakeðjum Norðurlandanna.

Í yfirlýsingunni, sem kennd er við Karlstad, er einnig fjallað um þörfina á að samræma framtíðarverkefni og fyrri samstarfsverkefni um viðbúnaðarmál og hún byggir m.a. á Hagayfirlýsingunum tveimur frá 2009 og 2013 og yfirlýsingu norrænu samstarfsráðherranna um samstarf á krísutímum frá 2022.

Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum