Öryggismál á norðurslóðum og Brexit meðal umræðuefna í Kaupmannahöfn
Samskipti Íslands og Danmerkur, öryggismál á norðanverðu Atlantshafi og Brexit voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, utanríkisráðherra, og Anders Samuelsen, utanríkisráðherra Danmerkur, í Kaupmannahöfn í dag. Ennfremur ræddu ráðherrarnir norræna samvinnu og samstarf á norðurslóðum og innan Eystrasaltsráðsins, en Ísland gegnir formennsku í ráðinu nú um stundir. Þá þakkaði Guðlaugur Þór fyrir veitta aðstoð danskra yfirvalda í máli Birnu Brjánsdóttur.
„Tengsl Íslands og Danmerkur eiga sér langa sögu og eru sífellt í þróun. Við eigum sameiginlegra hagsmuna að gæta innan Atlantshafsbandalagsins og á norðanverðu Atlantshafi, meðal annars á sviði leitar og björgunar, og norðurslóðamálin eru báðum þjóðum hugleikin. Við vorum jafnframt sammála um mikilvægi norrænnar samvinnu og norrænna gilda á ákveðnum óvissutímum í Evrópu og vestanhafs,“ segir Guðlaugur Þór.
Utanríkisráðherra tók ennfremur þátt í hringborðsumræðum um þjóðernishyggju og alþjóðavæðingu, sem var liður í dagskrá opinberrar heimsóknar forseta Íslands í Danmörku sem nú stendur yfir.