Sigurður Ingi mælti fyrir fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar
Sigurður Ingi Jóhannsson, samstarfsráðherra Norðurlanda, mælti í dag fyrir fjárhagsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar á þingi Norðurlandaráðs fyrir hönd norrænna samstarfsráðherra og svaraði spurningum þingmanna Norðurlandanna um áætlunina.
Heildarframlög til Norrænu ráðherranefndarinnar nema ríflega 950 milljónum danskra króna á ári sem fjármagnar meðal annars víðtækt samstarf Norðurlandanna á sviði mennta- og menningarmála, vísindarannsókna og nýsköpunar, og heilbrigðis- og félagsmála.
Vilji fyrir sameiginlegum rafrænum skilríkjum
Á þinginu kom fram skýr vilji til þess að Norðurlöndin komi sér upp sameiginlegum rafrænum skilríkjum, eða e-ID, sem greiði götu íbúa í öllum samskiptum á milli landa. Fyrr í morgun funduðu norrænir samstarfsráðherrar með forsætisnefnd Norðurlandaráðs.
Ísland tekur við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni áramót og gegnir henni árið 2019. Yfirskrift formennskuáætlunar Íslands er Gagnvegir góðir sem leggur áherslu á vináttu og samskipti Norðurlandanna. Á formennskuárinu mun Ísland leggja áherslu á ungt fólk, sjálfbæra ferðaþjónustu og málefni hafsins og efna til alls níu formennskuverkefna á þessum sviðum.
Gagnvegir góðir – formennskuáætlun Íslands