Forsætisráherra ræddi við Sanna Marin forsætisráðherra Finnlands
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, áttu símafund í dag en meginefni samtalsins var baráttan gegn COVID-19 og sóttvarnaráðstafanir sem löndin hafa gripið til.
Samkomutakmarkanir verða áfram við lýði bæði á Íslandi og í Finnlandi til að unnt sé að ná fullum tökum á faraldrinum en smitum hefur farið fækkandi í báðum ríkjum. Þær ræddu efnahagslegar ráðstafanir sem ríkin hafa gripið til og horfur í efnhagsmálum. Einnig um mikilvægi norræns samstarfs, í þeirri krefjandi stöðu sem upp er komin, og nauðsyn þess að Norðurlöndin eigi náið samstarf um næstu skref í baráttunni gegn faraldrinum.