Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn auglýsir ferðastyrki
Sænsk-íslenski samstarfssjóðurinn auglýsir nú eftir umsóknum til ferðastyrkja til að styðja íslenska þátttakendur í sænsk-íslenskum samstarfsverkefnum.
Markmið Sænsk-íslenska samstarfssjóðsins er að stuðla að auknu samstarfi Svíþjóðar og Íslands á sviði menningar, menntunar og vísinda.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar n.k., klukkan 23:59 að sænskum tíma (klukkan 22:59 að íslenskum tíma). Tengiliður sjóðsins er Ragnheiður Helga Þórarinsdóttir í netfangi: [email protected].
Um styrkina skal sótt á sérstökum eyðublöðum.
Sjóðurinn var stofnaður í kjölfar gjafar Svía til Íslendinga á 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins 1994. Nánari upplýsingar um Sænsk-íslenska samstarfssjóðinn má finna á svenskislandskafonden.se.