Leyfislyklar og ISO skrár
Leyfisumsýslan notar Teams til að veita tæknilegum tengiliðum stofnanna og skóla aðgang að leyfislyklum, ISO skrám og verðlistum fyrir Microsoft vörur undir leyfasamning Ríkisins við Microsoft. Tilgangur teymisins er einnig að ýta undir og hvetja til samskipta um þau málefni sem geta komið upp í þessu samhengi.
Fyrir hverja er hópurinn
Tæknilegir tengiliðir stofnunar / skóla geta fengið aðgang að þessum hópi. (breytingar þurfa að tilkynnast). Ef óskað er eftir aðgengi þá ber að senda tölvupóst á [email protected].
Athugið
Meðlimir í þessum hópi gangast undir skilyrði og reglur Microsoft um meðhöndlun á leyfislyklum og ISO skrám.
Helstu reglurnar eru:
- Ekki má setja upp neinn hugbúnað áður en viðkomandi leyfi er afgreitt (búið að panta hjá leyfisumsýslunni [email protected])
- Ekki má afhenda óviðkomandi leyfislykla eða ISO skrár nema um traustan samstarfs- eða þjónustuaðila er að ræða.
- Misnotkun getur varðað við lög um höfundarrétt og er refsivert.
Meðlimum í þessum hópi er veittur aðgangur að öllum lyklum og ISO skrám sem fylgja samningi Ríkisins og Microsoft. Meðlimum er treyst fyrir því að sækja aðeins leyfislykla og ISO skrár sem tilheyra þeirra stofnun / skóla
Leyfi sem nota ISO skrár
- Staðvær skrifstofu hubúnaður (on-premises)
- Windows þjónar (SQL and Windows server)
Sérstakir þjónar s.s. SQL Server og System Center Server eru ekki settir inn þar sem að við uppsetningu skiptir miklu máli að réttir / viðeigandi ISO skrár séu notaðar þ.a. Umbra mun útvega þá eftir þörfum einstakra stofnana / skóla þegar við á.
Leyfi sem nota ekki ISO skrár
- Leyfi sem falla undir skýjageirann (e. Tenant)
Nýskráning í Teams
Leyfisumsýslan veitir aðeins viðurkenndum aðilum/einstaklingum aðgang að þessum hópi og aðeins þeim sem hafa notendaaðgang hjá stofnun / skóla ([email protected]). Hvorki er leyfilegt að veita þjónustupósthólfum aðgang t.d. „[email protected]“ né notanda á léni þriðja aðila.
Umsókn
- Viðkomandi sækir um aðgang að Teams hópnum á þjónustuvef Umbra.
- Uppfylli umsækjandinn öll skilyrði þá fær hann sent boð um inngöngu í tölvupósti.
- Umsækjandi skráir sig inn sem gestur í teymið.
Nú ætti umsækjandi að vera kominn með aðgang að Teams svæðinu og þar hefur þar aðgang að lyklum og ISO skrám.
Hvernig veiti ég öðrum aðgang?
Ef að stofnun eða skóli er með þjónustu aðila sem á að sjá um þessi mál þá þarf að gera þetta þannig.
Gerður er notenda aðgangur hjá stofnun / skóla ([email protected]) þegar það er komið þá óskar tæknilegur tengiliður eða stjórnandi stofnunar / skóla eftir því að þessum notanda sé boðin þátttaka í þessum hópi.
Ef frekari upplýsingar óskast hafið samband á [email protected]
Verðskrá
Leyfisumsýslan notar Teams til að veita tæknilegum tengiliðum stofnanna og skóla aðgang að leyfislyklum, ISO skrám og verðlistum fyrir Microsoft vörur undir leyfasamning Ríkisins við Microsoft. Tilgangur teymsins er einnig að ýta undir og hvetja til samskipta um þau málefni sem geta komið upp í þessu samhengi.
Verðskrár
- Verðskrá fyrir skóla
- Verðskrá fyrir ríkisstofnanir
Microsoft leyfi
Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.