Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

11. janúar 2011 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðSvandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra 2009, umhverfis- og auðlindaráðherra 2012-2013

Árangur loftslagsráðstefnunnar í Cancún

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra birtist í Fréttablaðinu 11. janúar 2011.

Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna í Cancún í Mexíkó í desember síðastliðinn var árangursrík að flestra mati, en þar tókst samkomulag um ýmis mikilvæg atriði í loftslagsmálum. Hluta af árangrinum má einfaldlega þakka það að væntingum var í hóf stillt, öfugt við það sem var í Kaupmannahöfn 2009, þegar mistókst að ná settu markmiði um lagalega bindandi framtíðarsamkomulag í loftslagsmálum. Það eru líka blikur á lofti um framhaldið og óvíst hvað tekur við þegar fyrsta skuldbindingartímabili Kýótó-bókunarinnar lýkur í árslok 2012. Því má þó ekki gleyma að loftslagsbreytingar eru kannski flóknasta og erfiðasta verkefnið sem þjóðir heims glíma við og í Cancún voru gefin vilyrði um stóreflt starf á sviðum sem geta skilað raunverulegum árangri.

Tækniaðstoð og fjármögnun

Í Cancún var ákveðið að auka framlög til loftslagsverkefna í þróunarríkjunum, með það að markmiði að árleg framlög verði um 100 milljarðar Bandaríkjadala árið 2020. Þróunaraðstoð Íslands hefur dregist saman í kreppunni, en í framtíðinni munu verkefni sem hjálpa fátækum ríkjum að glíma við afleiðingar loftslagsbreytinga fá aukinn sess í slíkri aðstoð. Þá var einnig ákveðið að efla mjög starf að þróun og dreifingu loftslagsvænnar tækni. Þar geta leynst tækifæri fyrir Ísland, en hér á landi eru ýmsir vaxtarbroddar á þessu sviði. Grunnur var lagður að stóru alþjóðlegu verkefni sem miðar að því að draga úr eyðingu skóga í hitabeltinu og samþykkt að efla aðstoð við fátæk ríki sem þurfa mest að laga sig að afleiðingum loftslagsbreytinga.

Ísland styður viðleitni við að koma á lagalega bindandi alþjóðlegu framtíðarsamkomulagi í loftslagsmálum, þar sem öll þróuð ríki og stór og vaxandi þróunarríki eins og Kína, Indland og Brasilía axla ábyrgð við draga úr losun. Stefnt er að því að ná slíku samkomulagi í lok þessa árs, en óvíst um árangur, því mikið ber á milli ríkja við mat á réttlátri skiptingu byrða og lagalegan búning samkomulags, þótt aukinn samhljómur hafi náðst um markmið, aðgerðir og fjármögnun í Cancún.

Áhersla Íslands á jafnrétti kynjanna

Ísland hefur lagt sérstaka áherslu á tvennt í yfirstandandi samningaviðræðum, annars vegar jafnréttismál og hins vegar tillögu um endurheimt votlendis til að draga úr losun. Ísland hefur komið texta um jafnrétti kynjanna víða að í samningstextanum, sem mun greiða fyrir virkri aðkomu kvenna í þeim verkefnum sem lagt verður af stað með á grundvelli Cancún-samkomulagsins. Áhersla á jafnrétti kynjanna í slíkum verkefnum er ekki einungis réttlætismál, heldur sýnir reynslan að aukið ákvörðunarvald og fræðsla til kvenna leiðir til betri árangurs í verkefnum sem t.d. búa samfélög undir að aðlaga landbúnað að breyttu loftslagi eða styrkja viðbrögð við náttúruhamförum. Engin tilvísun var í jafnrétti kynjanna í samningstextum fyrir tveimur árum, þegar Ísland kom með fyrstu tillögur á því sviði, en nú er slík áhersla almennt viðurkennd.

Tillaga um endurheimt votlendis

Tillaga Íslands um endurheimt votlendis sem loftslagsaðgerð var líka samþykkt í Cancún, þótt hún öðlist ekki fullt vægi nema með samkomulagi um framhald Kýótó-bókunarinnar eftir 2012. Þetta er fyrsta breytingin á aðferðarfræði Kýótó sem hlýtur samþykki frá því bókunin gekk í gildi, en mikill fjöldi slíkra tillagna er á borðinu. Frumkvæði Íslands í þessum efnum hefur vakið nokkra athygli, þar sem losun frá framræstu votlendi á heimsvísu er verulegt, meira en t.d. frá allri flugumferð. Vernd og endurheimt votlendis er mikilsvert mál bæði hvað varðar vernd lífríkis og loftslags jarðar.

Það er því margt jákvætt sem kom út úr Cancún-fundinum, sem vonandi markar upphafið að auknu trausti milli ríkja og efldu starfi við aðgerðir sem skila raunverulegum árangri í loftslagsmálum.

Svandís Svavarsdóttir
umhverfisráðherra

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta