Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

06. desember 2012 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðSvandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra 2009, umhverfis- og auðlindaráðherra 2012-2013

Grein umhverfis- og auðlindaráðherra í Fréttablaðinu - Enn betri reglugerð

Eftirfarandi grein Svandísar Svavarsdóttur umhverfis- og auðlindaráðherra um endurskoðun bynningarreglugerðar birtist í Fréttablaðinu 6. desember 2012.

 

Enn betri reglugerð

Árið 2010 hófst endurskoðun byggingarreglugerðar á grundvelli nýrra mannvirkjalaga en í nefndinni áttu sæti einn verkfræðingur og tveir arkitektar. Því næst voru 60 sérfræðingar tilnefndir af rúmlega 15 hagsmunaaðilum og átta samráðshópar fjölluðu um mismunandi kafla en í hverjum hópi voru haldnir minnst átta fundir. Um er að ræða yfirgripsmikið verk sem margir hafa komið að og lá reglugerðin fyrir um síðustu áramót í núverandi mynd.

Gríðarlegir hagsmunir eru í húfi og brýnt að vel takist til. Reglugerðin endurspeglar metnað, ekki síst í þágu algildrar hönnunar og aðgengis eins og best gerist. Hljóðvistarkröfur eru auknar og áhersla á gæði og eftirlit aukast til muna. Sérstakan kafla er að finna um stúdentaíbúðir sem gegna óumdeilanlega sérstöðu á íbúðamarkaði.

Á yfirstandandi ári hafa fjölmargir kynningarfundir verið haldnir og mikil umræða hefur orðið um reglugerðina í fjölmiðlum og meðal hagsmunasamtaka. Þetta er vel og er mikilvægt að hlusta eftir þeim röddum sem fram hafa komið. Ég tel í því ljósi rétt að gera nokkrar vel rökstuddar breytingar á reglugerðinni, bæði efnislegar en ekki síður tæknilegar sem og breytingar er varða nálgun og sveigjanleika.

Með þessum breytingum er þess vænst að kostnaðaraukinn sem af heildarendurskoðuninni stafar verði í lágmarki. Ég hef tekið ákvörðun um að endurskoða ákvæði er varða einangrun byggingarhluta en umræðan hefur leitt í ljós að meiri tíma þarf til samráðs áður en frekari skref verði tekin í átt að betri nýtingu orkuauðlinda okkar varðandi húshitun.

Einnig verður liðkað enn frekar fyrir ákvæðum um rýmisstærðir svo að hægt sé að byggja minni íbúðir. Almennt má segja að breytingarnar feli í sér meiri sveigjanleika fyrir hönnuði og arkítekta til að ná markmiðum um algilda hönnun og aðgengi. Í umræðunni hefur sérstaklega borið á áhyggjum af kostnaðarauka vegna  ákvæða um algilda hönnun en með breytingunum verða þau ákvæði skýrð betur og lagfærð til að auka hagkvæmni og tryggja skýrleika og skilvirkni og draga úr kostnaðaráhrifum.

Ég vænti þess að þeir fjölmörgu aðilar sem styðjast við byggingarreglugerð í sínu daglega starfi taki höndum saman um að framkvæmdin verði til góðs fyrir almannahagsmuni.

 

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta