Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

12. september 2018 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Stórsókn í loftslagsmáum

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Fréttablaðinu 12. september 2018

Stórsókn í loftslagsmálum

Loftslagsbreytingar eru stærsta sameiginlega viðfangsefni mannkyns og brýnt að bregðast við þeim af festu. Sjö ráðherrar kynntu á mánudag umfangsmikla aðgerðaáætlun í loftslagsmálum Íslands. Aldrei áður hefur viðlíka fjármagn verið sett í loftslagsmál og nú.

Við setjum markið hátt. Við ætlum að ráðast í viðamikið átak í kolefnisbindingu – endurheimta votlendi, birkiskóga og kjarrlendi, berjast gegn jarðvegseyðingu og rækta skóg. Orkukerfi heimsins eru drifin áfram af jarðefnaeldsneyti og þar þarf kerfisbreytingu. Þarna ætlum við að beita okkur af krafti og ná fram orkuskiptum í vegasamgöngum. Við viljum hætta að brenna mengandi og innfluttum orkugjöfum og nota heldur innlenda, endurnýjanlega orku – rétt eins og við gerðum þegar við innleiddum hitaveituna. Við viljum vinna með sveitarfélögum að því að styrkja almenningssamgöngur, gera fólki kleift að lifa bíllausum lífsstíl og hætta að keyra bílaflotann okkar áfram á mengandi eldsneyti.

Út með olíuna

Hvar getum við Íslendingar dregið úr losun gróðurhúsalofttegunda til að standast markmið Parísarsáttmálans? Stóriðjan fellur ekki undir þær skuldbindingar sem eru á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda, heldur heyrir undir evrópskt kerfi með losunarheimildir sem ætlað er að draga úr losun frá starfsemi hennar. Alþjóðaflug fellur sömuleiðis ekki undir skuldbindingar einstakra ríkja og um landnotkun gilda sérstakar reglur. Hvar eru þá helstu tækifæri okkar?

Svarið liggur í olíu. Notkun hennar orsakar stærsta hluta þeirrar losunar sem er á beinni ábyrgð íslenskra stjórnvalda. Og um 60% af olíunni er notuð í vegasamgöngum. Stærsta verkefnið framundan er því stórfelld rafvæðing samgangna og stefnan skýr: Að helminga notkun jarðefnaeldsneytis í vegasamgöngum fyrir árið 2030.

Í aðgerðaáætluninni eru auðvitað fjölmargar aðrar aðgerðir sem stuðla að samdrætti í losun annarra geira, og sérstök áhersla er á nýsköpun. Fyrsta útgáfa áætlunarinnar í loftlagsmálum liggur nú fyrir. Framundan er samráð sem ég bind miklar vonir við.

Við viljum hætta að brenna mengandi og innfluttum orkugjöfum og nota heldur innlenda, endurnýjanlega orku – rétt eins og við gerðum þegar við innleiddum hitaveituna.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta