Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

21. júní 2019 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra um stórfellda uppbyggingu vegna orkuskipta

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Fréttablaðinu 12. júní 2019

Ég hef farið ferða minna hjólandi í mörg ár, nota oft strætó og átti bíl í eitt og hálft ár fyrir nær 15 árum síðan. Hins vegar skil ég vel að slíkt henti sumum illa og öðrum bara alls ekki. Og þótt brýnt sé að gera fólki kleift að velja almenningssamgöngur, hjólreiðar og annað slíkt til að komast á milli staða, verða bílar áfram til samhliða þessu. Hvað er þá til ráða þegar losun gróðurhúsalofttegunda frá vegasamgöngum er afar mikil – raunar þriðjungur allrar þeirrar losunar sem við þurfum að standa skil á gagnvart Parísarsamkomulaginu?

Svarið er að við verðum að hætta að brenna jarðefnaeldsneyti til að knýja bílaflotann okkar áfram. Þess í stað þurfum við að nota endurnýjanlega orku. Annað er ósjálfbært. Við þurfum að ná orkuskiptum í vegasamgöngum. Við eigum þegar að baki álíka byltingu þegar við hættum að brenna kolum til að kynda upp húsin okkar og komum þess í stað upp hitaveitu. Bann við nýskráningum bensín- og díselbíla árið 2030 er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum og bílaorkuskiptin ganga raunar vel. Ísland er nú í öðru sæti í heiminum á eftir Noregi hvað varðar nýskráningar rafbíla, auk þess sem stjórnvöld kynntu fyrr í vikunni aðgerðir sem skipta miklu til að tryggja að orkuskiptin gangi hratt og örugglega fyrir sig.

Fjárfesting upp á milljarð

Fjármagni verður veitt til uppbyggingar hraðhleðslustöðva um allt land, með áherslu á næstu kynslóð hleðslustöðva sem bjóða upp á mun styttri hleðslutíma en núverandi stöðvar gera. Mikilvægt er að koma upp þéttu neti af stöðvum til að koma í veg fyrir sóun og offjárfestingu fólks í stórum og langdrægnum rafhlöðum. Einnig verður ráðist í sérstakt verkefni með ferðaþjónustunni, enda áhrif innkaupa bílaleiga á samsetningu bílaflotans hér á landi afar mikil. Tæpur helmingur allra nýskráðra bifreiða á Íslandi eru bílaleigubílar og lykilatriði að ná þar fram orkuskiptum, þar sem bílaleigubílar verða síðar að heimilisbílum landsmanna þegar þeir eru seldir á eftirmarkaði.

Fram undan er síðan að fullvinna tillögur varðandi metan, vetni, lífeldsneyti, orkuskipti í almenningssamgöngum og fleiri mikilvæga þætti. Tilkynnt var um ráðstöfun 450 milljóna króna vegna orkuskipta á árunum 2019-2020 en heildarfjárfestingin eingöngu af þessari fyrstu upphæð gæti slagað hátt í milljarð, enda er gert ráð fyrir mótframlögum við veitingu fjárfestingarstyrkjanna.

Við höfum allt hér landi sem þarf til að vera í fararbroddi í heiminum í orkuskiptum í samgöngum.


Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta