Hoppa yfir valmynd

Ræða eða grein fyrrum ráðherra

19. janúar 2020 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytiðGuðmundur Ingi Guðbrandsson

Grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra - Hálendisþjóðgarður -afhverju og hvernig?

Eftirfarandi grein Guðmundar Inga Guðbrandssonar umhverfis- og auðlindaráðherra birtist í Feyki 19. janúar 2020.

 

Hálendisþjóðgarður – af hverju og hvernig?

Miðhálendi Íslands hefur að geyma ein stærstu óbyggðu víðerni Evrópu og magnaða náttúru sem fáa lætur ósnortna. Með þjóðgarði gefst einstakt tækifæri til að vernda þessi verðmæti, tryggja aðgengi útivistarfólks og standa vörð um hefðbundna sjálfbæra nýtingu, auk þess sem aðdráttarafl þjóðgarðs myndi skapa byggðunum tækifæri til atvinnuuppbyggingar og fjölga opinberum störfum í heimabyggð.

Þjóðgarð um sameign þjóðarinnar

Kveðið er á um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og drög að lagafrumvarpi um Hálendisþjóðgarð eru nú komin í samráðsgátt stjórnvalda. Þar er gengið út frá því sem þverpólitísk nefnd um stofnun þjóðgarðsins lagði til: að mörk þjóðgarðsins myndu miðast við landsvæði sem er nú þegar í sameign þjóðarinnar. Það er að segja; þjóðlendur og svæði sem þegar eru friðlýst á miðhálendinu. Samtals yrði garðurinn um 30% af flatarmáli Íslands, en þess ber að geta að helmingur þess landsvæðis er nú þegar friðlýstur.

Margskonar tækifæri

Hálendisþjóðgarður yrði stærsti þjóðgarður í Evrópu og einstakur á heimsvísu. Hann myndi vernda ein stærstu óbyggðu víðerni álfunnar og afar sérstæða náttúru.

Hálendisþjóðgarður hefði ekki í för með sér að miðhálendinu væri lokað eins og stundum er haldið fram. Eitt af markmiðum þjóðgarðsins er einmitt að auðvelda almenningi að kynnast og njóta náttúru miðhálendisins, menningu þess og sögu.

Gert er ráð fyrir að endurheimt raskaðra vistkerfa verði eitt af markmiðum þjóðgarðsins og að m.a. verði unnið að henni í samvinnu og samstarfi við félög og sjálfboðaliða á viðkomandi svæðum, ekki síst bændur sem víða hafa unnið mikilvægt starf við landgræðslu á hálendinu. Hefðbundnar nytjar verða áfram leyfðar innan þjóðgarðsins, svo sem búfjárbeit, fuglaveiði, hreindýraveiði og veiði í ám og vötnum. Gerð er krafa um sjálfbæra nýtingu þessara auðlinda.

Vatnajökulsþjóðgarður, þjóðgarðurinn Snæfellsjökull og þjóðgarðurinn á Þingvöllum hafa glögglega sýnt að þjóðgarðar hafa mikið aðdráttarafl. Þeir eru mikilvægir til að vernda náttúru, sögu og menningu, en skila um leið efnahagslegum ávinningi. Þeir skapa störf í nærumhverfi sínu. Ætla má að það myndi Hálendisþjóðgarður líka gera. Þar fyrir utan yrði hann stærsta framlag Íslands til náttúruverndar í heiminum fram til þessa.

Hvað með virkjanir?

Virkjanir hafa verið bitbein stjórnmálanna og samfélagslegrar umræðu í langan tíma. Með frumvarpsdrögum um Hálendisþjóðgarð er gerð tilraun til þess að sætta sjónarmið um virkjanir inni á hálendinu.

Lagt er til að þær leikreglur sem Alþingi setti með lögum um vernd og orkunýtingu landsvæða (öðru nafni rammaáætlun) verði virtar, en einnig tekið tillit þeirra leikreglna sem þjóðgarður skapar. Hægt verði að meta þær virkjunarhugmyndir inni á miðhálendinu sem þegar hafa komið fram og eru til skoðunar í núverandi rammaáætlun. Hvort af þeim virkjunum verður ræðst hins vegar af strangari kröfum en samkvæmt núgildandi löggjöf, enda svæðin innan þjóðgarðs. M.a. verði horft til þess hvort virkjunarhugmynd sé á röskuðu eða óröskuðu svæði. Nýjar virkjunarhugmyndir verði hins vegar ekki teknar til skoðunar og þannig dregin lína í sandinn við þriðja áfanga rammaáætlunar.

Hvað með skipulagsábyrgð sveitarfélaganna?

Með Hálendisþjóðgarði verður hægt að ná utan um skipulag miðhálendisins í heild sinni. Því hefur verið haldið fram að með stofnun Hálendisþjóðgarðs væri skipulagsvaldið á hálendinu tekið af sveitarfélögum á svæðinu. Það er ekki rétt. Sveitarfélög munu áfram vera ráðandi í skipulagsmálum þessa svæðis. Breytingin yrði hins vegar sú að skipulagsáætlanir sveitarfélaga myndu verða bundnar af því sem fram kæmi í stjórnunar- og verndaráætlun þjóðgarðsins. Sú áætlun er unnin af umdæmisráðum og stjórn þjóðgarðsins, en þar situr sveitarstjórnarfólk í meirihluta, auk fleiri hagsmunaaðila.

Væri þá öllu fjarstýrt að sunnan?

Nei. Gert er ráð fyrir að stjórnun og umsýsla þjóðgarðsins verði ekki í Reykjavík heldur dreift um rekstrarsvæðin og að þar verði starfsstöðvum komið upp.

Stjórnskipulag þjóðgarðsins felur í sér að ríki, sveitarfélög og hagaðilar koma sameiginlega að stefnumótun og stjórnun þjóðgarðsins.

Meirihluti stjórnarmanna verða kjörnir fulltrúar þeirra sveitarfélaga sem ná inn á miðhálendið en í stjórninni verða einnig fulltrúar ríkis, ferðaþjónustu, umhverfisverndar- og útivistarsamtaka og Bændasamtaka Íslands. Hugmyndin er sú að þjóðgarðinum verði skipt upp í sex rekstrarsvæði og svokölluð umdæmisráð fari með stefnumótun hvers svæðis. Ný stofnun, Þjóðgarðastofnun, myndi sinna daglegum rekstri.

Að lokum

Í vor mun ég mæla fyrir frumvarpi á Alþingi um Hálendisþjóðgarð. Þessa dagana er ég að kynna frumvarpsdrögin í kringum landið. Að mínu viti eru ótal tækifæri fólgin í stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, hvort sem litið er til náttúruverndar, fjölbreyttrar útivistar eða eflingar opinberra starfa og ferðaþjónustu á landsbyggðinni.

Efnisorð

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta