Hoppa yfir valmynd

Áhersluverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins

Hringrásarhagkerfið

Helstu áherslur ráðuneytisins eru: 

  • Að hraða eins og kostur er innleiðingu hringrásarhagkerfis hér á landi.
  • Að taka upp sjálfbærari neysluhætti og draga úr myndun úrgangs. 
  • Að byggja upp innviði sem stuðla að endurvinnslu úrgangs og brennslu þess úrgangs sem ekki er mögulegt að endurvinna, í því augnamiði að draga hratt úr urðun úrgangs. 

 

Virkt hringrásarhagkerfi er ein lykilforsenda þess að árangur náist í loftslagsmálum og vernd líffræðilegrar fjölbreytni. Markmiðið með hringrásarhagkerfi er að draga úr auðlindanotkun, auka líftíma auðlinda jarðar og koma í veg fyrir að efni og hlutir hverfi úr hagkerfinu sem úrgangur. Þannig má auka hagsæld og lífsgæði en um leið standa vörð um takmarkaðar auðlindir jarðar, stuðla að sjálfbærni og draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. 

Í ráðuneytinu fór á árinu fram markviss vinna við að tryggja farsæla framkvæmd lagabreytinga sem gerðar voru árið 2021 og snúa að hringrásarhagkerfi og úrgangsmálum, eða svokallaðra hringrásarlaga. Breytingarnar tóku að fullu gildi í upphafi árs 2023 og um er að ræða eina umfangsmestu og mikilvægustu breytingu á lagaumhverfi úrgangsmála sem orðið hefur í langan tíma. Vinnan fór meðal annars fram í samstarfi við Samband íslenskra sveitarfélaga auk þess sem ráðuneytið tók virkan þátt í og studdi við verkefni á vegum landshlutasamtaka sveitarfélaga. 

Plastmengun og strandhreinsun

Íslendingar voru ein þeirra 175 þjóða sem samþykktu á vettvangi Sameinuðu þjóðanna að vinna að gerð alþjóðlegs, bindandi samnings gegn plastmengun og ljúka gerð hans fyrir lok árs 2025. Ísland er hluti af svokölluðu metnaðarbandalagi um 50 ríkja þegar kemur að samningaviðræðunum en með samningnum er ætlunin að taka á öllum lífsferli plasts. 

Fimm ára átak ráðuneytisins til allsherjarhreinsunar strandlengjunnar af plasti og öðrum úrgangi hélt áfram á árinu. Styrkjum var veitt til fimm frjálsra félagasamtaka til að annast strandhreinsanir um landið og vitundarvakningu um mikilvægi strandhreinsana, alls 30 milljónum króna.

Starfshópar

Starfshópur sem ráðherra skipaði undangengið haust, í samráði við matvælaráðherra, skilaði niðurstöðum sínum um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum í ágúst. Mat starfshópsins er að þörf er á gagngerum breytingum á fyrirkomulagi eftirlitsins.

Skýrsla starfshóps um fyrirkomulag eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum og matvælum

Starfshópur sem ráðherra skipaði undangengið haust og fékk það hlutverk að koma með tillögur að því hvernig flýta megi innleiðingu hringrásarhagkerfis kynnti tillögur sínar „200 þúsund tonn af tækifærum“. Heitið vísaði til þess að starfshópurinn kortlagði um 200 þúsund tonn af úrgangi sem hafði verið urðaður árlega  en sem tækifæri eru til að breyta í verðmæti og draga með því úr sóun. Stofnun hringrásarklasa, vaxandi áhugi fyrir fjárfestingu í hringrásarverkefnum og skattalegar aðgerðir til að auðvelda endursölu nytjahluta eru meðal aðgerða og hugmynda sem fram komu í kynningu starfshópsins.

Í framhaldi af kynningu starfshópsins hafði ráðuneytið frumkvæði að stofnun hringrásarklasa í nánu samstarfi við félög, fyrirtæki og klasa. Hringrásarklasinn hefur það hlutverk að fylgja hringrásarverkefnunum eftir á forsendu klasahugmyndafræði, sem felur í sér að lögð er áhersla á að koma verkefnum í framkvæmd með samstarfi hagaðila.

Hringrásarklasinn

 

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta