Hoppa yfir valmynd

Áhersluverkefni umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins

Náttúruvernd

Helstu áherslur ráðuneytisins eru: 

  • Efling líffræðilegrar fjölbreytni
  •  Efling náttúruverndar með friðlýsingu svæða
  • Varfærin uppbygging innviða á friðlýstum svæðum 

Eitt af mikilvægustu verkefnum allra þjóða á sviði náttúruverndar er að tryggja verndun og viðhald líffræðilegrar fjölbreytni. Á fimmtánda fundi samningsins um líffræðilega fjölbreytni (CBD) sem haldinn var í desember 2022 í Montreal var mótuð ný heimsstefna fyrir líffræðilega fjölbreytni og aðgerðir til þess að vernda, endurheimta og viðhalda henni. Stefnan inniheldur fimm takmörk til ársins 2030 og 21 markmið sem aðildarríki samningsins samþykktu. Fram undan er vinna starfshóps við stefnumótun um verndun líffræðilegrar fjölbreytni þar sem meðal annars verður byggt á niðurstöðum CBD fundarins. Vinna við gerð stefnumótunarinnar er í samræmi við áherslu ríkisstjórnarinnar um að  á kjörtímabilinu eigi að ljúka við endurskoðun á stefnu um líffræðilega fjölbreytni.  Gert er ráð fyrir að stefnumótunin liggi fyrir í lok árs 2024.   

Hluti af eflingu líffræðilegrar fjölbreytni er að friðlýsa svæði til að stuðla að náttúruvernd. Samkvæmt lögum um náttúruvernd skal ráðherra leggja fram þingsályktun um framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár þar sem birt er skrá yfir þær náttúruminjar sem Alþingi hefur ákveðið að setja í forgang um friðlýsingu eða friðun. Vinna við forgangsröðun svæða sem til greina kæmu á framkvæmdaáætlun náttúruminjaskrár var unnin á árinu 2023.

Sjötta úthlutun fjármagns í tengslum við landsáætlun um innviði var í maí  árið 2023 og leysti hún eldri áætlun af hólmi. Þannig var haldið áfram að takast á við mikla og uppsafnaða þörf fyrir innviðauppbyggingu á svæðum sem búa við álag af völdum ferðamennsku. Ráðstafa á rúmlega 2,7 m.kr. vegna afmarkaðra innviðaverkefna á tímabilinu 2023-2025.  

Á árinu hóf ráðuneytið skoðun á aukinni aðkomu einkaaðila á rekstri og þjónustu innviða á friðlýstum svæðum.

Málefni menningarminja, þ.m.t. byggingararfs, fluttust til umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis með forsetaúrskurði þann 1. febrúar 2022.   Árið 2023 var skrúðgarðurinn Skrúður í Dýrafirði friðlýstur sem menningarminjar og Skutulsfjarðareyri og Nestikaupstaður á Ísafirði staðfest sem verndarsvæði í byggð.

Þá staðfesti ráðherra friðlýsingu Bessastaða sem friðlands og staðfesti stjórnunar- og verndaráætlun fyrir Kirkjugólf, Spákonufellshöfða og Hrútey.

Starfshópar 

Stýrihópur var skipaður um mögulega aðild Snæfellsnes að verkefni Mennta-, vísinda og menningarmálastofnunar Sameinuðu þjóðanna (UNESCO), Maður og lífheimur (e. Man and Biosphere), og er stefnt að því að skila tillögu til UNESCO árið 2024.   

Vinnuhópur um stefnumótun um gönguleiðir og þá umgjörð sem þeim þarf að skapa skilaði ráðherra tillögum sínum sem  settar voru til kynningar í samráðsgátt stjórnvalda í lok árs 2023. Hópurinn vann m.a. að tilraunaverkefni um ferðamannaleiðina Laugaveg frá Landmannalaugum til Þórsmerkur. Einnig vann hópurinn að stefnumótandi tillögum að umbótum á löggjöf varðandi ferðamannaleiðir, fyrirkomulag í skipulagi, formlega umsjón, erfiðleikastig og þjónustu- og öryggisstig og öðrum atriðum sem lúta að þessu viðfangsefni. Ráðherra, skipaði á árinu starfshóp sem var falið það hlutverk að vinna tillögur til ráðherra um framgang mála á Langanesi, sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins, með það að markmiði að efla samfélagið. Tillögur starfshópsins áttu m.a. að snúa að friðlýsingu á hluta Langaness, t.d. með stofnun þjóðgarðs, eflingu hringrásarhagkerfisins og grænni atvinnuuppbyggingu á svæðinu.

Stefnumótun um gönguleiðir

Starfshópur um stöðu minjaverndar skilaði ráðherra skýrslu sinni haustið 2023. Í skýrslunni Minjavernd - staða, áskoranir og tækifæri er þar að finna 49 tillögur til úrbóta, en umfang skýrslunnar takmarkast við þá hluta minjaverndar sem snúa að starfsemi Minjastofnunar Íslands. Skýrslan var sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda í desember 2023.

Skýrsla starfshóps um stöðu minjaverndar

Ráðherra skipaði á árinu starfshóp sem var falið það hlutverk að vinna tillögur til ráðherra um framgang þeirra mála í Dalabyggð, sem heyra undir málefnasvið ráðuneytisins, með það að markmiði að efla samfélagið. Tillögur starfshópsins áttu m.a. að snúa að mögulegri stofnun þjóðgarðs á svæðinu.

Var efnið hjálplegt?
Takk fyrir

Ábendingin verður notuð til að bæta gæði þjónustu og upplýsinga á vef Stjórnarráðsins. Hikaðu ekki við að hafa samband ef þig vantar aðstoð.

Af hverju ekki?

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta